Greiða 10 milljarða króna í arð til hluthafa Þorbjörn Þórðarson skrifar 3. ágúst 2018 12:58 Höfuðstöðvar Arion við Borgartún. Vísir/Pjetur
Stjórn Arion banka hefur samþykkt að leggja fyrir hluthafafund bankans, sem fram fer í september, að greiða 10 milljarða króna í arð til hluthafa fyrir lok þriðja ársfjórðungs í haust. Arion banki hagnaðist um 5 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum þessa árs.Arion banki var skráður samtímis í Kauphöll Íslands og Kauphöllina í Stokkhólmi hinn 15. júní síðastliðinn eftir almennt hlutafjárútboð þar sem 28,7 prósenta hlutur var seldur. Arion banki birti í gær uppgjör sitt fyrir fyrstu sex mánuði ársins. Samstæða bankans hagnaðist um 3,1 milljarð króna á öðrum ársfjórðungi samanborið við 7,1 milljarðs króna hagnað á sama tímabili í fyrra. Hagnaður bankans á fyrstu sex mánuðum ársins nam sléttum 5 milljörðum króna og var arðsemi eigin fjár 4,7 prósent. Þetta er rúmlega helmingi minni hagnaður en í fyrra en bankinn hagnaðist um 10,5 milljarða króna á fyrri helmingi síðasta árs. Heildareignir Arion banka námu 1.174 milljörðum króna í lok júní og eigið fé hluthafa bankans nam 206,9 milljörðum króna. Fram kemur í tilkynningu til Kauphallar vegna uppgjörsins að stjórn Arion banka hafi samþykkt að leggja fyrir hluthafafund bankans, sem fram fer í september, að greiða 10 milljarða króna í arð til hluthafa fyrir lok þriðja ársfjórðungs, sem samsvarar 5 krónum á hvern hlut. Bankinn vinnur um þessar mundir að því að koma Stakksbergi, eignarhaldsfélagi kísilverksmiðjunnar í Helguvík, í söluferli á síðari hluta ársins, að því er fram kemur í tilkynningu til Kauphallar.
Tengdar fréttir Hagnaður Arion dróst saman um 56 prósent Hagnaður Arion banka nam 3,1 milljarði króna á öðrum fjórðungi ársins og dróst saman um 56 prósent frá fyrra ári þegar hann nam 7,1 milljarði króna. 3. ágúst 2018 05:30 Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Fleiri fréttir Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sjá meira
Hagnaður Arion dróst saman um 56 prósent Hagnaður Arion banka nam 3,1 milljarði króna á öðrum fjórðungi ársins og dróst saman um 56 prósent frá fyrra ári þegar hann nam 7,1 milljarði króna. 3. ágúst 2018 05:30