Met í heitavatnsnotkun á höfuðborgarsvæðinu Atli Ísleifsson skrifar 1. janúar 2018 12:24 Það munaði um gamlársdagsbaðið. Vísir/Getty
Met var í heitavatnsnotkun á höfuðborgarsvæðinu milli klukkan 16:30 og 17:30 á gamlársdag. Þessa klukkustund nam rennslið í hitaveitu Veitna um 16,4 milljónum lítra og var þar með met í klukkustundarrennsli á heitu vatni frá þrettándanum 2014 slegið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veitum. Líklegt er talið að margir hafi skellt sér í sturtu eða bað fyrir kvöldið á þessum tíma sem skýri þessa miklu notkun. „Fyrra klukkustundarmet, frá því síðdegis 6. janúar 2014, var 16.087 rúmmetrar en á milli klukkan 16:30 og 17:30 á gamlársdag 2017 nam rennslið 16.384 rúmmetrum. Mikil orka er í þessum tæplega sextán og hálfu milljón lítra af heitu vatni og sé aflið reiknað til kunnuglegri stærða svarar það til hátt í þúsund megavatta. Það er á við samanlagðar stærstu vatnsaflsvirkjanir landsins, Kárahnjúka- og Búrfellsvirkjanir. Rúmlega helming heita vatnsins fá Veitur frá jarðgufuvirkjunum Orku náttúrunnar á Hengilssvæðinu – Nesjavallavirkjun og Hellisheiðarvirkjun – um 40% eru sótt í jarðhitasvæði í Mosfellsbæ og um tíundi partur í jarðhitasvæði innan höfuðborgarinnar, í Laugarnesi og Elliðaárdal,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Súperdósin snýr aftur Neytendur Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira