Viðskipti erlent

Indigo Partners tekur kanadískt flugfélag í gegn

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Hið nýja flugfélag mun einbeita sér að stuttu millilandaflugi og flugi innan Kanada.
Hið nýja flugfélag mun einbeita sér að stuttu millilandaflugi og flugi innan Kanada. Enerjet
Bandaríski fjárfestingasjóðurinn Indigo Partners, sem hyggst fjárfesta í WOW Air, er meðal þeirra sem koma að endurskipulagningu kanadísks flugfélags. Enerjet, sem í dag hefur flugrekstrarleyfi til leiguflugs, hyggst taka upp nýtt rekstrarlíkan á næsta ári - verða svokallaða ofurlággjaldaflugfélag. Hugtakið ætti að vera Íslendingum kunnugt enda hefur það verið viðloðandi endurskipulagningar- og fjárfestingaferli WOW air og Indigo.

Kanadíska flugfélagið mun einblína á innanlandsflug og styttri milllandaflug, þá einna helst til Bandaríkjanna. Auk Indigo hyggjast kanadískir sjóðir fjárfesta í hinu endurskipulagða flugfélagi. Tim Morgan, forstjóri Enerjet, hefur gefið það út að hið nýja ofurlággjaldaflugfélag muni þó ekki fljúga undir merkjum Enerjet, verið sé að leita að nafni sem hæfir hinu nýja félagi.

Enerjet hefur skilað tveimur Boeing 737-700s flugvélum sem félagið hafði á leigu. Ekki er búið gefa út hvernig vélar hið nýja félag mun reiða sig á en ætla má að þær verði af gerðinni Airbus A320neo. Eins og frægt er orðið pantaði Indigo Partners rúmlega 400 slíkar vélar í fyrra.

Bill Franke, stofnandi og aðaleigandi Indigo Partners, hefur mörg járn í eldinum.
Sjá einnig: Ofstækisfullur faðir lággjaldalíkansins freistar þess að bjarga WOW Air

Fyrrnefndur Morgan er hæstánægður með aðkomu Indigo Partners og kanadísku sjóðanna. Hann lýsir fjárfestunum sem „einhverjum þeim allra bestu sem ég hefði getað fengið til liðs við okkur,“ þegar kemur að endurskipulagningu flugfélagsins. „Þau munu skipta sér af rekstrinum (e. hands-on partners). Þetta er fólk sem kann á samkeppni,“ segir Morgan.

Aðspurður um rekstrarlíkan nýja félagsins segir Morgan að það verði ekki boðið upp á neinar nýjungar - „þetta eru ekki geimvísindi. Við munum gera það sama og önnur ofurlággjaldaflugfélög hafa gert með góðum árangri.“

Haft er eftir Íslandsvininum Bill Franke í tilkynningu sem gefin var út vegna fjárfestingarinnar að Indigo hafi mikla trú á því að hægt verði að stórbæta samkeppnisstöðu kanadíska flugiðnaðarins með innkomu öflugs ofurlággjaldaflugfélags. „Markmið okkar er að vera komin inn á markaðinn um þetta leyti á næsta ári og geta þannig auðveldað Kanadamönnum að heimsækja vini og ættingja yfir jólahátíðina, og um alla tíð,“ er haft eftir Franke.

Ofurlággjaldaflugfélag eiga sér ekkert sérstaklega langa sögu í Kanada ef marka má umfjöllun erlendra miðla af endurskipulagningu Enerjet. Dótturfélag WestJet, Swoop, er sagt vera það fyrsta sem fellur undir þá skilgreiningu en félagið hóf sig til flugs fyrr á þessu ári. Þá byrjaði ofurlággjaldaflugfélagið Flair Air að fljúga til Bandaríkjanna frá Kanada síðastliðið haust.


Tengdar fréttir

WOW air verður „ofurlággjaldaflugfélag“ ef Indigo fylgir sömu stefnu

Búast má við miklum breytingum á rekstri WOW air á næstunni ef Indigo Partners mun fylgja sömu stefnu gagnvart WOW air og fyrirtækið hefur fylgt gagnvart öðrum lággjaldaflugfélögum sem það hefur fjárfest í. Þetta segir forstjóri fraktflugfélagsins Bluebird Nordic sem hefur meira en 20 ára reynslu á flugmarkaði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×