Helena og Finnur á leiðinni heim Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 13. nóvember 2018 12:26 Helena var valin leikmaður ársins í Domino's deild kvenna síðasta vetur. vísir/andri marinó
Helena Sverrisdóttir er á leiðinni heim til Íslands úr atvinnumennsku. Finnur Atli Magnússon kemur með henni og gæti spilað með KR í Domino's deild karla. Helena varð Íslandsmeistari með Haukum í vor en gekk til liðs við ungverska liðið Cegledi í Ungverjalandi. Það hefur ekki gengið vel hjá liðinu, það er bara með einn sigur úr sex leikjum í deildinni. Helena kom til Íslands á dögunum til þess að taka þátt í landsliðsverkefni, kvennalandslið Íslands á fram undan tvo leiki í undankeppni EuroBasket. Hún sagði búslóðina hafa komið með heim. „Við erum að koma heim. Við tókum allt dótið með okkur núna og erum að koma heim,“ sagði Helena á æfingu landsliðsins í dag. „Þjálfarinn var að hætta og það er léleg stjórn á bakvið liðið. Ég vil ekki tala illa um þetta en það gengur mjög illa. Þess vegna er ég búin að hlakka til að komast heim og spila með stelpunum, mjög spennt fyrir því að komast í annað umhverfi.“ Þegar Helena var spurð hvort hún yrði með Haukum í næsta leik í Domino's deild kvenna var svarið: „Kemur í ljós, ég veit það ekki alveg.“ Finnur Atli hefur spilað með Haukum síðustu ár en fór með Helenu út til Ungverjalands. Í sumar skráði hann sig hins vegar í uppeldisfélagið KR. Vísir heyrði í Inga Þór Steindórssyni, þjálfara KR, og hann sagðist ekki hafa talað við Finn Atla enn sem komið er, Finnur muni þó funda með KR-ingum á næstu dögum.
Dominos-deild karla Dominos-deild kvenna Tengdar fréttir Helena til Ungverjalands Helena Sverrisdóttir mun ekki leika með Íslandsmeisturum Hauka á næstu leiktíð en hún hefur samið við lið í Ungverjalandi. 16. maí 2018 20:15 Finnur Atli ráðinn styrktarþjálfari í Ungverjalandi Finnur Atli Magnússon verður ekki með deildarmeisturum Hauka á næsta tímabili í Domino's deild karla. Hann er á leið út til Ungverjalands þar sem hann verður styrktarþjálfari ungverska liðsins Cegled. 17. maí 2018 12:44 Mest lesið Sjáðu fljótasta mark í sögu EM og endurkomu Ítalíu Fótbolti Yngsti þjálfari í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Enski boltinn Bjarni lætur af störfum hjá KR Fótbolti Ítalía kom til baka gegn Albaníu Fótbolti Spánverjar skoruðu mörkin Fótbolti Hundraðasta mark Söndru Maríu kom í Garðabænum Íslenski boltinn Yngstur í sögunni: Fagnaði áfanganum með stoðsendingu Fótbolti Dagskráin í dag: Besta deild kvenna, Opna bandaríska og hafnabolti Sport Kevin Campbell látinn eftir stutt veikindi Fótbolti Matija Sarkic látinn aðeins 26 ára gamall Fótbolti Fleiri fréttir Þorleifur áfram með Grindavík Mavericks knúðu fram annan leik með krafti Hélt að hásinin hefði slitnað: „Fékk svona tilfinningu eins og einhver hefði sparkað aftan í mig“ Celtics vilja sjá Horford hampa titlinum: „Þetta snýst um meira en bara mig“ Landsliðsmaður snýr heim úr atvinnumennsku og semur við Stjörnuna Alba Berlin tapaði úrslitaeinvíginu án Martins Hulda verður áfram hjá Grindavík Ho You Fat í Hauka Þorvaldur Orri kemur aftur til KR Luka ósáttur með dómgæsluna: „Aldrei komið fyrir mig áður“ Spurðu hvort Friðrik vildi ekki frekar bíða eftir starfi hjá karlaliði Boston með níu fingur á titlinum Körfuboltagoðsögnin Jerry West er látin Segist tilbúinn að deyja á vellinum en fær líklega ekki að spila Badmus fer hvergi WNBA-deildin að slá öll met Neitaði rúmlega átta milljörðum frá Lakers Aftur til Milwaukee eftir brottreksturinn frá Lakers Clark ekki valin í landsliðið: „Þeir vöktu skrímslið“ Kyrie Irving leyfir Luka Doncic ekki að axla ábyrgð á tapinu Mavericks dauðmóðir og Celtics taka tveggja leikja forystu Blása til styrktarleiks í minningu Bjarka Elvar Már áfram í Grikklandi en fer í nýtt félag Friðrik tekur við keflinu í Keflavík Jóhann Árni til Hattar Grindvíkingar sækja Bandaríkjamann norður og Mortensen framlengir Boston tók forystuna í úrslitunum með öruggum sigri Porzingis klár í kvöld og spenntur fyrir úrslitaeinvígi gegn gömlu félögunum Martin ekki meira með á tímabilinu en Alba Berlin komst í úrslit Valur byrjað að styrkja sig fyrir næstu leiktíð Sjá meira
Helena til Ungverjalands Helena Sverrisdóttir mun ekki leika með Íslandsmeisturum Hauka á næstu leiktíð en hún hefur samið við lið í Ungverjalandi. 16. maí 2018 20:15
Finnur Atli ráðinn styrktarþjálfari í Ungverjalandi Finnur Atli Magnússon verður ekki með deildarmeisturum Hauka á næsta tímabili í Domino's deild karla. Hann er á leið út til Ungverjalands þar sem hann verður styrktarþjálfari ungverska liðsins Cegled. 17. maí 2018 12:44