Viðskipti innlent

Hækkuð þjónustugjöld banka bitni verst á gamla fólkinu

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Í verðkönnuninni kemur fram að Arion banki hefur hækkað gjöld sín hvað mest af íslensku bönkunum
Í verðkönnuninni kemur fram að Arion banki hefur hækkað gjöld sín hvað mest af íslensku bönkunum Vísir/Eyþór
Í Bítinu í morgun voru hækkuð þjónustugjöld bankanna rædd auk nýrra gjalda sem hafa verið sett á alls kyns þjónustu bankanna.

Auður Alfa Ólafsdóttir, verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ, ræddi könnun sem ASÍ gerði á gjöldunum. Verðskrár bankanna haustið 2018 voru bornar saman við verðskrár haustið 2015. Á þessum þremur árum hafa gjöldin hækkað um frá tuttugu prósentum í mörg hundruð prósent.

Það er sérstaklega verið að búa til gjöld og hækka verð á þjónustu sem viðskiptavinir eru að sækja í útibúin, “ segir Auður Alfa en tekur fram að fólk geti lækkað kostnaðinn með því að nýta sér tæknina og stunda viðskiptin í gegnum tölvuna. Þó séu ekki allir sem nýti sér þá tækni.

„Þetta er skattur á þá sem eru ekki eins færir hvað tækni varðar, eins og gamalt fólk, sem nýta sér útibúin í miklum mæli.“ Einnig bendir Auður Alfa á að fólk geri sér ekki grein fyrir hvað það sé að borga mikið.

„Gjöldin eru dregin sjálfkrafa af reikningum þínum og þú færð ekki yfirlit yfir hvað þetta er mikið, samantekið. Þannig verður þetta svo falinn kostnaður.“

Auður Alfa sá sjálf um verðsamanburðinn og segir það hafa verið flókið verk enda afar erfitt að finna upplýsingar um gjöldin, verðskrár séu ógagnsæjar og að gjöldin heiti misjöfnum nöfnum eftir bönkum.

„Ég þurfti að enda á því að hringja í bankana til að fá aðstoð en þjónustufulltrúar bankanna gátu ekki svarað mér, gátu ekki sjálfir lesið í verðskrár bankanna þar sem þeir eru að vinna sem segir ansi mikið um flækjustigið í þessum verðskrám,” segir Auður Alfa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×