Fær 75 milljóna dala lán frá Norræna fjárfestingabankanum Atli Ísleifsson skrifar 5. október 2018 09:30 Höfuðstöðvar Landsbankans. vísir/vilhelm
Landsbankinn hefur fengið 75 milljóna Bandaríkjadala lán frá Norræna fjárfestingabankanum (NIB) til sjö ára. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbankanum. Upphæðin nemur vel á níunda milljarð íslenskra króna. Láninu er ætlað til fjármögnunar á litlum og meðalstórum fyrirtækjum á Íslandi og verkefnum tengdum umhverfismálum að því er fram kemur í tilkynningunni. Um er að ræða þriðja lánasamninginn sem NIB gerir við Landsbankann en eldri samningar eru frá árunum 2015 og 2017. Haft er eftir Henrik Normann, forstjóra Norræna fjárfestingabankans, að samstarf bankanna hafi reynst afar farsælt. „Í samstarfi við Landsbankann getum við náð til fjölda lítilla og meðalstórra fyrirtækja á Íslandi með langtímafjármögnun í Bandaríkjadölum.“Bætt lánskjör Lilja Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir að með samstarfinu fái bankinn í senn bætt lánskjör og geti betur stutt við sjálfbæran og stöðugan vöxt íslenskra fyrirtækja. NIB er alþjóðleg fjármálastofnun í eigu átta aðildarríkja: Danmerkur, Eistlands, Finnlands, Íslands, Lettlands, Litháens, Noregs og Svíþjóðar. Bankinn lánar bæði til verkefna í opinbera og einkageiranum jafnt innan sem utan aðildarríkjanna. Lánshæfismatseinkunn NIB er AAA/Aaa frá S&P Global og Moody‘s, segir í tilkynningunni.
Mest lesið Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Sjá meira