Segir heilbrigðiskerfið allt of brotakennt Elísabet Inga Sigurðardóttir og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 8. september 2018 12:22 Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra visir/vilhelm
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, segir heilbrigðiskerfið hér á landi allt of brotakennt. Ráðherra segir að ekki sé skortur á sérfræðilæknum en heildarsýn vanti. Hún segir ástandið í íslenska heilbrigðiskerfinu hvergi nærri nógu gott þó hér sé nægt úrval af fagfólki. „Staðan er þannig núna að kerfið er allt of brotakennt og það eru allt of margir sem þurfa að bíða eftir sumri tegund þjónustu á meðan offramboð er á annarri tegund þjónustu. Það er þetta samtal sem við erum í núna og þurfum að eiga. Ástandið í heilbrigðiskerfinu er hvergi nærri nógu gott þó það sé í grunninn mjög vel nestað af góðu fagfólki og við vitum það sem í því lendum að við fáum góða grunnheilbrigðisþjónustu á Íslandi,“ segir Svandís Svavarsdóttir. Þá segir hún að ekki sé skortur á sérfræðilæknum á Íslandi en heildarsýn skorti í kerfinu. „Ísland býr yfir fjölda sérfræðilækna og við búum ekki yfir skorti á sérfræðilæknum en það sem við búum við hér er brotakennt kerfi þar sem skortir heildarsýn. Það er það sem ég er að vinna við að koma í kring. Bæði í samstarfi við lækna og aðra sérfræðinga og annað heilbrigðisstarfsfólk en líka við opinberu heilbrigðisstofnanirnar því grunnurinn hlýtur að vera sterkt opinbert heilbrigðiskerfi og síðan samspil við aðra þætti heilbrigðisþjónustunnar sem veitt er af öðrum aðilum. Ég held að það séu allir sammála um það að kerfið nákvæmlega eins og það er núna er ekki gott. En ég vil trúa því að sérfræðilæknar eins og annað heilbrigðisstarfsólk sé sammála mér um það að við viljum heildstæðari, betri og nútímalegri heilbrigðisþjónustu fyrir alla þjóðina,“ segir Svandís.
Mest lesið Enginn ávinningur annar en einfaldlega hrært vatn Innlent „Hver sofnaði á verðinum?“ Innlent Siggi stormur stendur við spána Innlent Hraun runnið að Grindavíkurvegi Innlent Strákarnir fengu að fylgjast með verðlaunaafhendingunni Innlent Íbúar óttast nýtt hverfi og að ekki verði tekið tillit til þeirra Innlent Hraungígur brast í morgun Innlent Skrifaði á sig í gríð og erg og fær engar bætur eftir uppsögn Innlent Grunaður um að hafa brotið á konu um borð í Polar Nanoq Innlent Íbúar óánægðir með borgina sem kemur í veg fyrir Bónusverslun Innlent Fleiri fréttir Ótrúlegt sjónarspil á Grindavíkurvegi Borgarstjóri á hvolfi hátt yfir Reykjavík Vanhæfur þegar hann dæmdi mann til að greiða 142 milljónir Tvö þúsund manns heimsóttu Guðna í síðasta sinn Ekki lagaheimild fyrir einhliða viðskiptaþvingunum gegn Ísrael Sækja tvo slasaða eftir bílveltu Telur að lokast hafi fyrir gíginn að hluta Grunaður um að hafa brotið á konu um borð í Polar Nanoq Blóðbað við björgun gísla og bein útsending frá Grindavíkurvegi Áhlaupinu lokið en annað ekki útilokað „Verið að ráðast á lýðræðið og boðar aldrei gott“ „Hver sofnaði á verðinum?“ Vinstri græn geti farið í sögubækurnar Brennó, pönnukökubakstur og stígvélakast á landsmóti „Þetta er nánast allt eins og við áttum von á“ Grindavíkurvegur undir hraun og alvarleg árás á forsætisráðherra Skrifaði á sig í gríð og erg og fær engar bætur eftir uppsögn Hraun runnið að Grindavíkurvegi Enginn ávinningur annar en einfaldlega hrært vatn Borgarstjórinn tekinn í listflug á flugsýningu Engin orð sem lýsa deginum örlagaríka í Grindavík Siggi stormur stendur við spána Lyfjarisinn veitir offitufræðslu: „Hvaðan á þetta að koma?“ Telur kjördæmin of stór og vill jafna vægi atkvæða Þyngri dómur fyrir að nauðga barnungri mágkonu 12 þúsundasti íbúi Árborgar heiðraður Dómar vegna manndrápsins í Hafnarfirði þyngdir Krísufundur VG, ónýt stúka og tónleikar í beinni „Finnum að það er upplifun einhverra íbúa að okkur sé alveg sama“ Fluttur á sjúkrahús eftir árekstur nærri Hvalfjarðargöngum Sjá meira