Sjáðu stórkostleg tilþrif hjá þessum ellefu ára strák Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. ágúst 2018 15:15 Ungur knattspyrnumaður lætur vaða á markið. Myndin tengist fréttinni þó ekki neitt. Vísir/Getty
Danska félagið FC Nordsjælland á efnilegt krakkalið sem tryggði sér titil á dögunum. Ellefu ára lið FC Nordsjælland vann þá Jægersborg bikarinn. Liðið tryggði sér sigurinn með sannfærandi 7-0 sigri á Dragør BK í úrslitaleiknum. Það var vissulega nóg af mörkum í úrslitaleiknum en það er þó eitt þeirra sem hefur vakið heimsathygli sem er nokkuð gott hjá ellefu ára strák í unglingamóti. Það er samt ekkert skrýtið þótt að mark stráksins fari nú um netið eins og eldur í sinu. Danski strákurinn sýndi nefnilega stórkostleg tilþrif áður en hann þrumaði knettinum í mark Dragør. Strákurinn lyftir boltanum á magnaðan hátt yfir varnarmann og markvörðurinn á síðan engan möguleika á að verja fast viðstöðulaust skot hans. Markið hans má sjá hér fyrir neðan af Twitter-síðu FC Nordsjælland.Congratulations to our U11 on winning Jægersborg Cup today Here one of the goals from the final#TheWayWe#Attack#BelieveInYouthpic.twitter.com/rozw1LNzUQ — FC Nordsjælland (@FCNordsjaelland) August 19, 2018Ellefu ára lið Nordsjælland lék fjóra leiki á mótinu og vann þá alla. Markatalan var 22-1. Liðið vann undanúrslitaleikinn á móti Lyngby Boldklub 4-0. Það fylgir ekki sögunni hvað strákurinn heitir eða hvað hann skoraði mörg mörk í úrslitaleiknum eða mótinu. Það þarf aftur á móti ekki að koma á óvart ef hann nær langt í fótboltanum í framtíðinni.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu Bjarka skora gegn Betis og fagna að hætti Cunha „Ég reyni bara að njóta fótboltans og lífsins“ Hvolsvellingur og EM-fari í Stjörnuna Veðmálasvindl tengt Ballon d'Or á borði lögreglu Hópurinn sem gæti komið Íslandi á EM Dreymir um að sjá framherjapar Íslands í ensku úrvalsdeildinni „Ef menn geta ekki hagað sér núna þá er eitthvað mikið að“ „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Arnar kynnti landsliðshópinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Sjá meira