Öfugmæli að óska verslunarmönnum til hamingju með daga sem þeir þurfi helst að vinna á Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 5. ágúst 2018 13:02 Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hvetur landsmenn til þess að kaupa í matinn utan frídags verslunarmanna og atvinnurekendur að virða daginn og gefa verslunarmönnum frí.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hvetur landsmenn til þess að kaupa í matinn utan frídags verslunarmanna og atvinnurekendur að virða daginn og gefa verslunarmönnum frí. Opnanir á frídegi verslunarmanna komi illa við félagsmenn VR sem finnist það öfugmæli að verslunarmönnum sé óskað til hamingju með daga sem þeir helst þurfi að vinna á.Einkennilegt að eina fólkið sem þurfi að vinna á frídegi verslunarmanna sé verslunarfólk „Að sama skapi vil ég hrósa þeim fyrirtækjum sem þó hafa lokað, og aftur, hvetja bæði fyrirtæki og almenning í að virða þennan frídag verslunarmanna með því að skipuleggja sig í kringum þessa helgi,“ segir Ragnar Þór sem var gestur Kristjáns Kristjánssonar, auk forstjóra IKEA og formanns Samtaka verslunar og þjónustu, á Sprengisandi í morgun. Á miðvikudaginn sendi stéttarfélagið út tilkynningu þar sem skorað var á atvinnurekendur að gefa verslunarfólki frí á mánudaginn „og láta frídag verslunarmanna standa undir nafni“. Sjá nánar: VR skorar á atvinnurekendur að gefa verslunarfólki frí á mánudaginn „Oft hefur fólk á orði að einkennilegt sé að eina fólkið sem raunverulega þurfi að vinna á frídegi verslunarmanna sé verslunarfólk. Þetta er að sjálfsögðu ekki að öllu leyti rétt enda margar stéttir sem leggja sitt af mörkum til samfélagsins þennan tiltekna dag, eins og aðra daga,“ segir í tilkynningunni.Þórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri IKEA á Íslandi, segir ákveðin kaflaskipti framundan hjá fyrirtækinu.VísirVerði að aðlagast breyttum tímum Þórarinn Ævarsson, forstjóri IKEA, sem einnig var í þættinum, segir að þrátt fyrir að IKEA sé lokað á frídegi verslunarmanna sé dagurinn hálfgerð tímaskekkja í ljósi þess hversu margir erlendir ferðamenn séu á landinu og búist við því að getað verslað í matinn. „Við getum ekki lengur hagað okkur eins og við gerðum hér áður þar sem öllu er lokað,“ segir Þórarinn sem bætir við að Íslendingar verði að aðlagast breyttum tímum. Ragnar Þór grípur þá boltann á lofti og bendir á að hann hafi séð atvinnurekendur nýta 1. maí til þess að auglýsa tilboð. „Þetta er komið út í hálfgerðar öfgar á köflum þar sem fyrirtæki eru farin að nýta þessa frídaga sérstaklega til að auglýsa einhver tilboð,“ segir Ragnar. Í dag fái fólk margra vikna orlof Margrét Sanders, formaður Samtaka verslunar og þjónustu, sem einnig var gestur í þættinum, segir að við séum á allt öðrum stað í dag en þegar ákveðið var að halda upp á frídag verslunarmanna. Þá hafi verið kallað eftir frídeginum því fólk hafi virkilega þurft á fríi að halda en að í dag sé sá háttur hafður á að fólk fái margra vikna orlof. „Það er bara kominn annar tími,“ segir Margrét.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira