Viðskipti innlent

Innkalla vöruna Turmeric frá Natures Aid

Birgir Olgeirsson skrifar
Viðskiptavinum sem hafa keypt vöruna er bent á að farga eða skila henni til þeirrar verslunar þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu.

Artasan hefur ákveðið að innkalla vöruna Turmeric frá Natures Aid.

Innköllunin er gerð vegna breytinga á ráðlögðum dagsskammti sem EFSA hefur gefið út og er því Turmeric frá Natures Aid með RDS yfir þeim mörkum. Natures Aid hefur þegar farið í að framleiða nýtt Turmeric sem miðar við nýjar reglugerðir og mun það koma í sölu seinna í sumar.

Viðskiptavinum sem hafa keypt vöruna er bent á að farga eða skila henni til þeirrar verslunar þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×