Viðskipti innlent

Björn Markús til Origo

Samúel Karl Ólason skrifar
Björn Markús Þórsson hefur verið ráðinn sérfræðingur í miðlægum lausnum hjá upplýsingatæknifyrirtækinu Origo. Björn Markús býr yfir viðamikilli reynslu en hann hefur komið að fjölmörgum innleiðingum tölvukerfa og rekstri upplýsingatæknikerfa hjá ólíkum fyrirtækjum á liðnum árum. Sú reynsla mun nýtast Origo vel í þeim verkefnum sem eru fram undan.

Hann var áður deildarstjóri tölvudeildar Mannvits, annaðist hönnun og innleiðingu á tölvukerfi Manvits í Ungverjalandi og Bretlandi og stækkun á tölvukerfi Norðuráls. Þá starfaði hann sem sérfræðingur í skýja-, afritunar- og rekstrarlausnum hjá Advania. Björn er með Microsoft Certified IT Professional vottun frá Promennt auk vottunar í Veeam.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×