Óli fékk símtal frá Securitas rétt rúmlega fjögur í nótt þar sem honum er tilkynnt að brotist hafi verið inn. Þegar hann mætir á vettvang nokkrum mínútum sér hann að innbrotsþjófarnir höfðu brotið tvær rúður og farið inn þar sem þeir brutu allt og brömluðu með kúbeini.
„Þeir brutu útsetningarskápa, turna og afgreiðsluborð. Það var allt í rúst. Glerbrot og blóð úti um allt. Annar þeirra hefur greinilega skorið sig mjög illa,“ segir Óli.

Sex innbrot á 25 árum
Gullsmiðja Óla verðu 25 ára gömul þegar kvennafrídagurinn gengur í garð nítjánda júní næstkomandi. Óli hefur rekið verslunina ásamt eiginkonu sinni Eygló Sif Steinþórsdóttur og hafa dætur hans Eygló Mjöll, Hanna Rún og Unnur Kristín aðstoðað þau.

„Þó þetta sé alltaf ömurlegt þá þakkar maður guði fyrir að þetta er fyrirtæki en ekki heimili,“ segir Óli.

Hann segir heildarverð skartgripanna sem var stolið nema einhverjum milljónum væntanlega. Þá eru innréttingar ónýtir og margt sem á eftir að fara í gegnum. Til dæmis skartgripi sem þjófarnir tóku ekki en skemmdust í hamaganginum þegar þeir brutu glerskápa þannig að glerbrotum rigndi yfir skartgripina.
Óli er gullsmiður og einnig dóttir hans Unnur Kristín en þau hafa tekið að sér að sérsmíða skartgripi fyrir viðskiptavina ásamt því að sinna viðgerðum.

Hann segir gripir sem þau gera við hafi oft mikið tilfinningalegt gildi fyrir viðskiptavinina og sé í raun ekki hægt að bæta þá ef þeim yrði stolið. Hann segir alla slíka gripi geymda inni í læstum peningaskáp í versluninni.
„Það er allt lokað og læst inni á góðum stað og það fer enginn þangað inn. Maður er alltaf hræddastur við það en þegar maður sér að það er allt í lagi þá er þungu fargi af manni létt, því hitt eru dauðir hlutir,“ segir Óli og tekur fram að þau hafi aldrei glatað slíkum hlutum í öllum þessum innbrotum.
Hann segir reksturinn halda áfram og ganga sinn vanagang þrátt fyrir þetta innbrot. „Það er til dæmis viðskiptavinur að bíða eftir mér á meðan ég tala við þig,“ segir Óli. „Við erum með fullt af verkefnum sem við þurfum að klára og afhenda á morgun, til dæmis fyrir brúðkaup. Þannig að það verður bara unnið í nótt.“