Tveir ferðamenn í lífshættu eftir slys á Þingvallavatni Kristín Ólafsdóttir skrifar 20. maí 2018 14:10
Ferðamennirnir tveir, karl og kona, sem fluttir voru á sjúkrahús eftir slys á Villingavatni við Þingvallavatn eru báðir taldir í lífshættu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.Sjá einnig: Tveir fluttir á sjúkrahús eftir slys á Þingvallavatni Í tilkynningu segir að Neyðarlínu hafi borist aðstoðarbeiðni frá hópi erlendra ferðamanna klukkan 11:44 í dag. Þar hafði maður fallið í vatnið og annar, sem talið er að hafi ætlað sér að aðstoða viðkomandi, örmagnast á sundi. Lögreglan á Suðurlandi staðfestir jafnframt við fréttastofu að um sé að ræða karl og konu sem höfðu verið í bát á vatninu. Björgunarsveitir, sjúkralið og lögregla héldu þegar á vettvang en bátamenn voru þá þegar við leit í Ölfusá vegna manns sem þar féll í ána í nótt. Mennirnir voru fluttir á sjúkrahús í Reykjavík en eins og áður sagði eru þeir báðir taldir í lífshættu. Þá hyggst lögregla ekki veita frekari upplýsingar um málið að sinni.Slysið varð við Villingavatn. Mynd er frá vettvangi í dag.MYND/JÓHANN K. JÓHANNSSONSlökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu sendi þrjá kafara ásamt kafarabíl og bát á vettvang að Þingvallavatni, nánar tiltekið að Villingavatni til suðurs, skömmu eftir hádegi í dag.Fréttin hefur verið uppfærð. Þá hefur fyrirsögn verið breytt eftir að fyrir lá að um var að ræða ferðamenn, konu og karl.
Tengdar fréttir Tveir fluttir á sjúkrahús eftir slys á Þingvallavatni Þrír kafarar ásamt kafarabíl og bát voru sendir á vettvang. 20. maí 2018 12:31 Mest lesið Eldur logar í þaki Kringlunnar Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Innlent Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Innlent Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Erlent Festust á hvolfi í hálftíma Erlent Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Innlent Fleiri fréttir „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Öxnadalsheiði opin á ný Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Of snemmt að kenna bikblæðingum um Átök á lokametrunum: Saka ríkisstjórn um að „slátra“ samgönguáætlun Kynntu á annað hundrað aðgerðir í loftslagsmálum Þeir sem „brjóta alvarlega af sér“ verði sviptir dvalarleyfum Íþróttafélög hafa sum selt áfengi í leyfisleysi Sjá meira
Tveir fluttir á sjúkrahús eftir slys á Þingvallavatni Þrír kafarar ásamt kafarabíl og bát voru sendir á vettvang. 20. maí 2018 12:31