Þetta eru hóparnir í Startup Reykjavík 2018 Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 22. maí 2018 13:43 Tíu teymi hafa verið valin til þátttöku í hraðlinum sem hefst þann 11. júní næstkomandi. Icelandic Startups
Viðskiptahraðallinn Startup Reykjavík fer nú af stað í sjöunda sinn í samstarfi Arion banka og Icelandic Startup. Hraðallinn hefur fest sig í sessi sem eftirsóttur vettvangur fyrir sprotafyrirtæki sem vilja þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar og hraða vexti undir leiðsögn sérfræðinga. Lögð er áhersla á að ná til öflugra teyma með nýjar lausnir á sviði tækni og skapandi greinda, ætlaðar alþjóðamarkaði. Umsóknum í hraðalinn fjölgaði um 45% frá síðasta ári, en alls bárust 270 umsóknir í ár. Tíu teymi hafa verið valin til þátttöku í hraðlinum sem hefst þann 11. júní næstkomandi. Þau eru afar fjölbreytt og komin vel af stað, flest eru nú þegar farin að afla tekna. Þrjú þeirra koma erlendis frá: Bretlandi, Svíþjóð og Spáni. Hóparnir sem taka þátt og hugmyndirnar að baki fyrirækjunum eru eftirfarandi:Anymaker Stafrænt stúdíó sem framleiðir þrívíddarhugbúnað ætlaðan börnum.Blockcycle Kerfi sem nýtir Blockchain tæknina til að rekja feril umbúða frá afurð til endastöðvar.Ekki banka Einföld og snjöll þjónusta, sem hjálpar fólki að gera meira úr peningunum sínum.Huginn.care Skýjalausn, fyrir fyrirtæki og stofnanir, sem ætlað er að einfalda atvika- og dagbókaskráningar skjólstæðinga í umönnun.Koride Deilibílalausn fyrir ævintýragjarna ferðamenn á Íslandi.Leiguskjól Fjártæknifyrirtæki sem býr til nýjar lausnir fyrir leigumarkað.Melius Hannar og framleiðir vélbúnað sem gerir snjallsímum kleift að fylgja því sjálfvirkt eftir sem tekið er upp á símanum.Sea Data Center Tæknilausn sem byggir á einstökum gagnagrunni og ætlað er að auka virði viðskipta meðal fyrirtækja í sjávarútvegi.Taktikal Hugbúnaðarlausn sem gerir einstaklingum og lögaðilum mögulegt að stofna til viðskipta á örfáum mínútum með sjálfvirknivæðingu á ýmsum viðskiptaferlum.Unify Me Tæknilausn sem gerir fyrirtækjum kleift að eiga öll innri samskipti á einum stað. Teymin tíu munu njóta ráðgjafar og leiðsagnar reyndra frumkvöðla, fjárfesta og annara sérfræðinga yfir tíu vikna tímabil í þeim tilgangi að þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar, koma vöru á markað og hraða vexti. Arion banki fjárfestir jafnframt 2,4 m.kr. í hverju fyrirtæki gegn 6% eignahlut í gegnum dótturfélagið Startup Reykjavik Invest ehf.
Mest lesið Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Viðskipti innlent Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Auknar tekjur og minni kostnaður Viðskipti innlent Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Viðskipti innlent Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Viðskipti erlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Vara við skordýrum í chia-fræjum Neytendur Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Viðskipti innlent Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Sjá meira