Viðskipti innlent

Bættu við sig fimm prósenta hlut í Stoðum

Kristinn Ingi Jónsson skrifar
Jón Sigurðsson, stjórnarformaður Stoða
Jón Sigurðsson, stjórnarformaður Stoða
Stærsti hluthafi Stoða, fjárfestahópur sem samanstendur meðal annars af Jóni Sigurðssyni, Einari Erni Ólafssyni og Magnúsi Ármann, keypti 4,6 prósenta hlut í fjárfestingarfélaginu af erlendum fjármálastofnunum á seinni hluta síðasta árs. Hópurinn átti tæplega 55 prósenta hlut í Stoðum í lok ársins.

Fjárfestahópurinn keypti umræddan eignarhlut í gegnum félagið S121 af fjármálastofnunum Tavira Securitas og Lux CSD.

Eins og upplýst var í Markaðinum í síðustu viku munu Stoðir á næstu vikum gera öllum minni hluthöfum, meðal annars ýmsum íslenskum lífeyrissjóðum og erlendum fjármálastofnunum, tilboð um að kaupa bréf þeirra í félaginu.

Eigið fé fjárfestingarfélagsins er um átján milljarðar króna en félagið fékk í lok síðasta mánaðar greiddar um 144 milljónir evra fyrir tæplega 8,9 prósenta hlut sinn í evrópska drykkjaframleiðandanum Refresco.

Eins og kunnugt er eignaðist fjárfestahópurinn, sem samanstendur af einkafjárfestum auk tryggingafélagsins TM, ríflega helmingshlut í Stoðum á fyrri hluta síðasta árs. Næststærsti hluthafi Stoða er Arion banki með 16,4 prósenta hlut og þá fer Landsbankinn með 13,4 prósenta hlut. Ólíklegt þykir að bankarnir muni losa um bréf sín í félaginu á næstunni, samkvæmt heimildum Markaðarins.

Hagnaður Stoða nam 5,4 milljörðum króna á síðasta ári, samkvæmt nýbirtum ársreikningi félagsins, en til samanburðar var afkoman neikvæð um 4,8 milljarða árið áður. Félagið lauk nauðasamningum árið 2009 og hefur frá þeim tíma unnið að því að umbreyta eignum í reiðufé og greiða út til hluthafa. Líkt og Markaðurinn hefur greint frá hefur hins vegar verið ákveðið að breyta tilgangi félagsins og halda starfsemi þess áfram sem fjárfestingarfélagi.




Tengdar fréttir

Stoðir bjóðast til að kaupa út smærri hluthafa

Stoðir, sem eru í meirihlutaeigu meðal annars Jóns Sigurðssonar, Einars Arnar Ólafssonar og Magnúsar Ármanns í gegnum eignarhaldsfélagið S121, munu á næstu vikum gera öllum minni hluthöfum tilboð um að kaupa bréf þeirra í félaginu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×