Ríkið bíður enn eftir milljarða greiðslu Byrs Hörður Ægisson skrifar 18. apríl 2018 07:00 Stærstu hluthafar Byrs eru þýskir bankar og sparisjóðir. Vísir/Stefán
Gamli Byr, sem lauk nauðasamningum í janúar 2016, hefur enn ekki getað greitt stöðugleikaframlag til íslenska ríkisins sem yrði að óbreyttu rúmlega tveir milljarðar króna sökum ágreinings við Íslandsbanka um virði útlánasafns sem bankinn keypti af Byr og ríkissjóði haustið 2011. Íslandsbanki, sem er alfarið í eigu ríkisins, telur að ofmat á verðmæti lánasafnsins hafi valdið bankanum fjártjóni og hefur krafist þess að Gamli Byr og ríkissjóður greiði bankanum skaðabætur upp á 7,7 milljarða króna auk vaxta. Bankinn borgaði samtals 6,6 milljarða á sínum tíma fyrir allar eignir Byrs. Í greinargerð sem Byr lagði fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í byrjun árs er meðal annars vakin athygli á því að Íslandsbanki hafi viðurkennt í júlí 2017 að hafa veitt dómkvöddum matsmönnum rangar upplýsingar um tryggingar og greiðsluflæði þeirra lána sem þeim var ætlað að gefa álit á til að meta meint fjártjón bankans. ViðskiptaMogginn greindi frá því í síðasta mánuði að bankinn hefði lagt fyrir matsmennina gögn sem gáfu til kynna að 993 lán sem hann tók yfir með kaupunum hefðu verið án trygginga. Í ljós hafi hins vegar komið að tryggingar lágu að baki nær öllum lánanna. Þá segir í greinargerðinni, sem Markaðurinn hefur undir höndum, að í skýrslu sem endurskoðunarfyrirtækið PwC gerði fyrir Byr á grundvelli þeirra gagna sem Íslandsbanki lagði fram hafi eins verið sýnt fram á að bankinn hefði í mörgum tilfellum tekið til sín tryggingar sem voru að baki lánum Byrs. Þannig hafi hann ráðstafað þeim inn á eigin kröfur án þess að færa Byr til tekna þau verðmæti sem komu í stað trygginganna. Ekki hafi verið unnt að fullyrða, byggt á þeim gögnum sem voru fáanleg, hver sú fjárhæð hafi samtals verið en þó megi ætla að hún nemi tugum milljóna króna. Íslandsbanki hafnaði þessum athugasemdum PwC í „öllum megindráttum“ og segir að tryggingarnar hafi að mestu réttilega tilheyrt bankanum, en ekki Byr.Skoða að krefjast rannsóknar Gestur Jónsson, lögmaður Byrs, staðfestir í samtali við Markaðinn að félagið hafi í kjölfar þess að upp komst um að Íslandsbanki hafi veitt matsmönnunum rangar upplýsingar séð ástæðu til að skrifa bréf til stjórnar bankans í september í fyrra til að vekja athygli á vinnubrögðum hans í málinu. Aðspurður segir hann að það hafi verið til skoðunar hjá Gamla Byr að krefjast rannsóknar á því hvernig það kom til að Íslandsbanki lagði fram rangar upplýsingar sem grundvöll að meintu tjóni og hver beri ábyrgð á því. Með þessu móti hafi bankinn getað fengið til sín verðmæti sem hann hafi ekki átt tilkall til. Gestur segir að Gamli Byr hafi óskað eftir því við Íslandsbanka að hann veiti aðgang að réttum upplýsingum um innheimtu alls lánasafns Byrs, aðgang að niðurstöðum áreiðanleikakönnunar sem bankinn vann á verðmæti eigna Byrs og geri jafnframt grein fyrir gangvirðismati sem hann gerði vegna samruna Byrs og Íslandsbanka. Gestur Jónsson lögmaðurÞað skjóti skökku við, útskýrir Gestur, að bankinn hafi sjálfur metið útlánasafnið á rúmlega 80 milljarða seinni hluta ársins 2011 þegar hann færði niður keypta viðskiptavild Byrs um 17 milljarða en fari nú fram á að fá 7 milljarða greidda til baka vegna þess að safnið hafi ekki staðið undir væntingum um 90 til 95 milljarða. Gamli Byr hefur krafist þess að Íslandsbanki felli dómsmálið niður hið fyrsta en bankinn hefur sagst vilja bíða eftir því að hinir dómkvöddu matsmenn, sem hafa unnið að virðismatinu frá 2013 og fengið greitt á annað hundrað milljóna króna fyrir þá vinnu, ljúki verki sínu. Forviða á vinnubrögðum Kröfuhafar Byrs, að stærstum hluta þýskir bankar og sparisjóðir sem eru upprunalegir lánveitendur sparisjóðsins, eru sagðir forviða á vinnubrögðum Íslandsbanka, að sögn þeirra sem þekkja vel til málsins. Þeir hafi lengst af sýnt því skilning að bankinn eigi rétt á því að bera ágreining sinn undir dómstóla enda þótt þeir hafi undrast málatilbúnaðinn. Það eigi ekki síst við með hliðsjón af því að stór fjármálastofnun eins og Íslandsbanki, sem framkvæmdi eigin áreiðanleikakönnun við kaup á mun minna fjármálafyrirtæki skuli krefjast skaðabóta með þeim rökum að virði útlánasafns, sem var yfirtekið skömmu eftir fordæmalaust fjármála- og efnahagshrun, hafi ekki verið í samræmi við væntingar. Steininn hafi hins tekið úr fyrir um ári þegar uppvíst varð um ranga upplýsingagjöf Íslandsbanka sem hefði getað leitt til þess að bankinn hefði auðgast með ólögmætum hætti á kostnað annarra kröfuhafa og hluthafa Gamla Byrs. Það mál sem nú er rekið fyrir dómstólum hefur tafið verulega lok slitameðferðar Gamla Byrs og þar með um leið komið í veg fyrir útgreiðslur til hluthafa. Þá hefur Gamli Byr, sem fyrr segir, enn ekki getað innt af hendi stöðugleikaframlag sitt til íslenska ríkisins sem er áætlað að eigi að óbreyttu að verða rúmlega tveir milljarðar króna, samkvæmt upplýsingum Markaðarins.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Heimsmarkaðsverð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð” Neytendur Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Viðskipti innlent Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Viðskipti innlent Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Viðskipti erlent Þessi eru tilnefnd til Íslensku vefverðlaunanna Viðskipti Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Viðskipti innlent Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Viðskipti innlent Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Viðskipti innlent Ein heild – sveigjanlegar lausnir í byggingariðnaði Samstarf Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Viðskipti innlent Fleiri fréttir Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Sjá meira