Glamour

Kveður Burberry eftir 17 ár

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Tískuvikan í London stendur nú yfir, þar sem eftirvæntingin var mikil eftir Burberry. Ástæðan fyrir því var að þetta var síðasta lína Christopher Bailey fyrir tískuhúsið, en þar hefur hann hannað síðustu sautján ár. 

Línan var sýnd í vestur-London, þar sem margar stjörnur voru á meðal áhorfenda, og einar vinsælustu fyrirsætur Bretlands gengu tískupallana. Litagleðin var allsráðandi, en Christopher notaði regnbogalitina mikið, í loðkápum jafnt sem pilsum. 

Mikið var um mynstur, þar sem gegnsæjar flíkur voru settar yfir prjónapeysur eða langermaboli. Það trend var áberandi fyrir sumarið, svo gaman er að sjá að það muni halda áfram og inn í veturinn. Köflótt var enn áberandi, en skortur var samt á þessum gömlu góðu klassísku Burberry-flíkum sem Christopher hefur gert svo vinsælt, eins og bresku hermannajakkarnir. 

Það verður spennandi að sjá hvað Christopher Bailey gerir næst, en eitt er víst, og það er að hann ákvað að fara frá Burberry á glaðlegan hátt. 

Burberry finale

A post shared by Suzy Menkes (@suzymenkesvogue) on






×