Talar opinskátt um eggjagjöfina Guðný Hrönn skrifar 1. febrúar 2018 08:15 Ninna mun brátt gefa egg í von um að geta aðstoðað fólk sem er að glíma við ófrjósemi. vísir/vilhelm
Ninna Karla Katrínardóttir er í miðju eggjagjafarferli vegna þess að hana langar að aðstoða fólk í frjósemisvanda við að láta draum sinn rætast. Ninna hefur talað opinskátt um eggjagjöf og vill þannig velja fólk til umhugsunar. „Ég byrjaði á fyrstu lyfjunum fyrir viku,“ segir Ninna. Meðferðin getur tekið tvær til þrjár vikur og Ninna vonast til að hún skili því að tvær konur fái egg frá henni. Þess má geta að núna eru 78 konur á biðlista eftir eggi hjá LIVIO Reykjavík, sem áður hét IVF-klíníkin. „Mér finnst þetta eitthvað svo sjálfsagt. Ég á tvö börn og ætla mjög líklega ekki að eignast fleiri. Ég átti börnin mín mjög auðveldlega og mér þykir mjög leiðinlegt að allir geti ekki eignast börn sem vilja það,“ segir Ninna spurð út í af hverju hún vilji gefa egg. „Ég á sjálf fullt af eggjum sem ég hef ekkert með að gera. Og það eru konur sem þurfa á þeim að halda.“ Þetta verður í annað sinn sem Ninna gefur egg. „Ég var búin að ætla að gera þetta í mörg ár en einhvern veginn frestaði þessu alltaf. En það var svo í fyrra sem vinkona mín hafði samband við mig og bað mig hreinlega um að gefa sér egg, vegna þess að hún og maðurinn hennar voru að reyna að eignast barn.“„Þá loksins dreif ég í þessu og gaf þeim egg, sem reyndar varð ekki að barni, því miður.“ Í þetta sinn er hún ekki að gefa vinkonu egg. „Núna er ég bara að gefa egg almennt og þá fá mögulega tvær konur egg frá mér,“ útskýrir Ninna. Hún mun ekki fá upplýsingar um hvert eggin hennar fara en hún ætlar þó að vera svokallaður „þekktur gjafi“. „Maður getur valið hvort maður er þekktur gjafi eða óþekktur. Að vera þekktur gjafi þýðir að barnið sjálft getur fengið upplýsingar um mig og leitað að mér þegar það er orðið 18 ára. Mér finnst það mjög mikilvægt að hafa þetta þannig vegna þess að við erum á Íslandi, þetta er svo lítið land. Og bara vegna þess ef barnið myndi t.d. kynnast mínum börnum,“ segir hún og hlær. Ninna segist ekki vera búin að hugsa mikið út í hvernig það yrði ef barnið eða börnin sem yrðu til úr eggjum hennar kæmu svo bankandi upp á eftir tvo áratugi. „Ég veit ekki. Ég myndi örugglega bara taka því með opnum örmum. Maður þarf náttúrulega að gera ráð fyrir að það geti gerst. Maður tekur bara á því þegar þar að kemur. En ég held að það yrði bara skemmtilegt,“ segir Ninna glöð í bragði. Þess má geta að þótt konur sem gefa egg fái ekki að vita hvert eggin þeirra fara þá fá þær samt upplýsingar um hvort aðgerðin hafi heppnast „Það er ágætt að fá þær upplýsingar, því þá fær maður smá svona „closure“.“ Passað vel upp á eggjagjafannNinna segir sjálft eggjagjafarferlið í fyrra hafa gengið vel og að það hafi ekki valdið henni miklum líkamlegum óþægindum.„Ég fann auðvitað aðeins fyrir þessu því maður er að sprauta sig með miklu af hormónum.“ „En svo er auðvitað misjafnt hvernig þetta fer í konur. Ég var aðeins þrútin í kringum magasvæðið og varð alveg rosalega meyr, ég grét yfir öllu eins og ég væri ólétt,“ segir hún og skellir upp úr. „Svo á eggheimtudeginum þá varð ég smá slöpp og líka í tvo, þrjá daga eftir á. Annars fylgdu þessu ekki mikil óþægindi myndi ég segja. Það er passað vel upp á mann.“ Vill vekja fólk til umhugsunarNinna hefur talað opinskátt um eggjagjöfina á Snapchat og vonar að það veki aðrar konur til umhugsunar. Áhugasamir geta fylgst með Ninnu á Snapchat en notandanafn hennar er ninnakarla. „Ég vona að aðrar konur sem geta gefið egg sjái að þetta er minna mál en maður heldur,“ segir Ninna sem er þeirrar skoðunar að það vanti upp á upplýsingar um eggjagjöf. „Ég held að fáir séu að pæla í þessum möguleika og maður heyrir lítið um að það vanti eggjagjafa. En það er mikil þörf á eggjum og það er tveggja ára biðlisti eftir eggi hjá Klíníkinni. Það er hrikalega langur tími.“ Ninna bætir að lokum við: „Mér finnst dásamlegt að hugsa til þess að ég geti gefið fólki tækifæri til að eignast barn, fólki sem er kannski búið að láta sig dreyma um að eignast barn í mörg ár.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Ástrós getur elskað fleiri en einn í einu: „Hvernig hefurðu tíma í þetta?“ Lífið Laufey sigursælust og Todmobile heiðruð Tónlist Hvað veistu um… Akureyri? Lífið Gagnrýni: Veruleikinn fær falleinkunn. Stóð upp í hléi Lífið Gæðastund með gæðablóðum Lífið Áhrifamestu augnablikin í Kórnum: Flókin líkamsímynd, Bieber-aðdáun og sungið á íslensku Tónlist Hollywood-stjarna blastar íslenskri hljómsveit Lífið „Mikilvægast að vera með hreina samvisku“ Lífið Íslenskir strákar í heimildarmynd um skuggaheim karláhrifavalda Lífið Hringdu kannski-stjarnan orðin mamma Tónlist Fleiri fréttir Gagnrýni: Veruleikinn fær falleinkunn. Stóð upp í hléi Hvað veistu um… Akureyri? Gæðastund með gæðablóðum Ástrós getur elskað fleiri en einn í einu: „Hvernig hefurðu tíma í þetta?“ Hollywood-stjarna blastar íslenskri hljómsveit „Mikilvægast að vera með hreina samvisku“ „Þetta var alltaf stóri draumurinn“ Íslenskir strákar í heimildarmynd um skuggaheim karláhrifavalda Svona gekk Sindra Sindrasyni í bílprófinu „Jú, ég sá einhverja fræga“ Villi Neto skellti hráu eggi með skurninni upp í sig Betra að setja upp sólgleraugu inni á kvöldin en úti í morgunsólinni Áttu ógleymanlegt augnablik þegar Laufey sá þær í salnum Komst áfram fyrst íslenskra kvenna á vængjum fjallkonunnar Komu Laufey og félögum á óvart með pulsustandi Hefur safnað sjö milljónum í minningu Jökuls Íslendingur fagnaði Óskarsverðlaunum Ekki lengur „give me five-frambjóðandi“ Hver er Alex Jones? Maðurinn sem vopnvæddi óttann og græddi milljarða Stjörnulífið: Bombur í Hörpu Vilja rauðvín á föstudögum á Selfossi Uppljómun í Kaupmannahöfn breytti lífinu Krakkatía vikunnar: Hljóð, fróð og ljóðaflóð Leitaði aftur til Stígamóta eftir að gömul sár gerðu vart við sig Reykt þorskhrogn og handgerð páskaegg í Hörpu Hvernig er hægt að elska foreldrið sem hefur sært mann? „Komum okkur fyrir í Hugrekkislestinni“ Fréttatía vikunnar: Fótur, fit og Gunnar Nelson „Viljum alls ekki fá fólk hingað inn og skamma það“ Gauragangur í Menntaskólanum að Laugarvatni Sjá meira
Áhrifamestu augnablikin í Kórnum: Flókin líkamsímynd, Bieber-aðdáun og sungið á íslensku Tónlist
Áhrifamestu augnablikin í Kórnum: Flókin líkamsímynd, Bieber-aðdáun og sungið á íslensku Tónlist