Háski fyrir hugaða krakka 2. febrúar 2018 14:30 Uppvakningar rísa úr opnum gröfum kirkjugarðanna á Háskaleikunum. MYND/JÚNÍA LÍF MARÍUERLA SIGURJÓNSDÓTTIR
Kjarkmiklum krökkum er boðið að taka þátt í háskaleik í Borgarbókasafninu í Grófinni á Safnanótt í kvöld og takast á við voðalegar áskoranir. Í lokin fá öll börn verðlaun fyrir áræðni og kjark. Kynjaverur og vættir hafa fundið sér íverustað í öllum krókum og kimum Borgarbókasafnsins í Grófinni í kvöld. Á Safnanótt vakna þær til lífsins og fara á kreik þegar dimma tekur. Á Háskaleikunum geta hugaðir krakkar kíkt í leyniklefa Harrys Potter þar sem margar kynjaverur leynast og átök við Lord Voldemort, varúlfa og vitsugur. Börnin lenda líka í töfraheimi Narníu þar sem þau stíga inn í ævintýraheim ljóss og lita og hitta fyrir glitrandi og seiðandi ævintýra- og furðuverur. Á vegi hugumstórra barna verður líka ógeðskassi þar sem starandi augu veltast um í kaldri leðju slors og hors innan um snáka og snigla og víst að þar þarf hug og þor til að þreifa ofan í kassann. Maðurinn magri fær líka hárin til að rísa og þeir allra hugrökkustu geta litið við hjá Quasimodo, kroppinbaknum voðalega í kirkjuturninum en þar er eins gott að rata aftur út.Það þarf kjarkmikla krakka til að mæta vættum og kynjaverum sem verða á vegi þeirra á Háskaleikunum.MYND/JÚNÍA LÍF MARÍUERLA SIGURJÓNSDÓTTIRKomdu og skoðaðu í líkkistuna mínaÞað er aðeins á færi hinna allra huguðustu að feta sig í gegnum voðalegt völundarhús þar sem hætturnar leynast í hverju horni, og úr kirkjugörðunum skríða uppvakningar og beinagrindur úr opnum gröfum, og spurning hvort einhver þorir að leggjast í líkkistuna? Á Háskaleikunum eru líka dimm og djúp göng þar sem allt getur gerst og enginn veit hvað leynist í iðrum jarðar. Þar geta kjarkaðir krakkar skriðið í gegn og sigrast á óttanum við hið ókunnuga. Að síðustu verður veitt höfuðlausn. Munu börnin halda höfði eða enda sem höfuðréttur óvættarinnar? Til þess þurfa þau að fara undir borðið og sjá hvort þau haldi haus. Rúsínan í pylsuendanum verður koldimmt karókí þar sem hægt verður að velja úr sautján þúsund lögum frá klukkan 21 til 23.Draugar, nornir, beinagrindur, skrímsli og uppvakningar taka líka yfir á söfnum Borgarbókasafnsins á Heimsdegi barna á morgun, laugardag.MYND/JÚNÍA LÍF MARÍUERLA SIGURJÓNSDÓTTIRHeimsdagur barnaÁ morgun, laugardag, verður haldið upp á Heimsdag barna í öllum menningarhúsum Borgarbókasafnsins. Þá gefst börnum og fjölskyldum þeirra tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum smiðjum og ævintýrum í menningarhúsunum Árbæ, Gerðubergi, Grófinni, Kringlunni, Sólheimum og Spönginni. Í ár hafa myrkraverur tekið yfir söfnin: draugar, nornir, beinagrindur, skrímsli og uppvakningar. Boðið verður upp á búningasmiðjur, föndursmiðjur, slímgerð og getraunir. Háskaleikarnir fara fram í Grófarhúsi, Ljósmyndasafninu og Borgarskjalasafninu frá klukkan 18 til 21 í kvöld, 2. febrúar 2018. Heimsdagur barna stendur yfir frá klukkan 13 til 17 á morgun, laugardaginn 3. febrúar. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Nánari upplýsingar um dagskrá á Safnanótt a vetrarhatid.is.
Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Fundu ástina á Domino's Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Arnór Sig kominn á fast Lífið Fleiri fréttir Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“