Spá því að EBITDA Haga lækki um 39 prósent Kristinn Ingi Jónsson skrifar 10. janúar 2018 10:30 Finnur Árnason, forstjóri Haga. Vísir/Eyþór
Hagfræðideild Landsbankans gerir ráð fyrir því að rekstrarhagnaður verslunarfélagsins Haga fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) hafi numið 850 milljónum króna á rekstrartímabilinu 1. september til 30. nóvember í fyrra og dregist þannig saman um 39 prósent frá fyrra ári. Er það svipaður samdráttur og á öðrum fjórðungi rekstrarárs félagsins. Stjórnendur Haga munu birta uppgjör fyrir þriðja fjórðung rekstrarársins á morgun. Greinendur Landsbankans spá því að sala félagsins hafi verið ríflega 17 milljarðar króna á þriðja fjórðungi rekstrarársins en til samanburðar var hún tæpir 19 milljarðar á sama tímabili árið 2016. Gera þeir auk þess ráð fyrir að hagnaður Haga hafi verið 507 milljónir króna á þriðja fjórðungi yfirstandandi rekstrarárs, eða þrjú prósent af sölu, en hann var 874 milljónir, eða 4,6 prósent af sölu, á þriðja fjórðungi rekstrarársins 2016. Fram kemur í afkomuspá hagfræðideildarinnar að samkeppni á markaðinum sé enn hörð vegna umsvifa Costco og telja sérfræðingar bankans að ekki verði grundvallarbreyting þar á. Mesti samdrátturinn í sölu Haga er þó að mati sérfræðinganna yfirstaðinn. Engu að síður megi áfram búast við að salan dragist saman og verði um 10 prósentum lægri á þriðja fjórðungi rekstrarársins en á sama fjórðungi árið 2016. Greinendur bankans gera ráð fyrir að launakostnaður hafi haldið áfram að hækka á þriðja fjórðungi vegna kjarasamningsbundinna launahækkana og þenslu á vinnumarkaði. Á móti hafi annar rekstrarkostnaður dregist saman vegna lokana verslana. Líklegt sé að fermetrum fyrirtækisins haldi áfram að fækka á komandi misserum.Fréttin birtist fyrst í Markaðinum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og fjármál.
Mest lesið Ólíklegt að eignir dugi fyrir launakröfum Viðskipti innlent Ekkert til í því að enginn rjómi sé í Rjómaísnum Neytendur Landsbankinn greiðir 34,9 milljarða í arð til hluthafa Viðskipti innlent „Við erum meira að segja hætt að hlusta í tölvupóstum“ Atvinnulíf Lítið fékkst upp í 217 milljóna kröfur í bú Kvikmyndaskólans Viðskipti innlent Orkan fyrst eldsneytisfyrirtækja á Íslandi með umhverfisvottun fyrir allar stöðvar Samstarf Ný sátt gerð og Míla sektuð um 200 milljónir Viðskipti innlent Íbúðum til sölu fjölgar verulega frá áramótum Viðskipti innlent Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Viðskipti erlent Ná sátt og geta haldið kjaraviðræðum áfram Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ólíklegt að eignir dugi fyrir launakröfum Lyfjaver opnar nýtt apótek í Klíníkinni Fjórar Kappahl-verslanir til viðbótar opnaðar á morgun „Af og frá“ að bankarnir græði á verðbólgu Stofnandi Bláa lónsins nú formaður stjórnar Lykilfólk úr Vélfagi stofnar nýtt sjávarútvegstæknifyrirtæki Ná sátt og geta haldið kjaraviðræðum áfram Ný sátt gerð og Míla sektuð um 200 milljónir Lítið fékkst upp í 217 milljóna kröfur í bú Kvikmyndaskólans Landsbankinn greiðir 34,9 milljarða í arð til hluthafa Íbúðum til sölu fjölgar verulega frá áramótum Tónabíó opnar á ný Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Vextir hafi sannarlega lækkað en framboðið sé breytt Launahækkanir muni valda meiri stýrivaxtahækkunum Tekur ekki undir fullyrðingar um plat Klofningur nefndarinnar helstu tíðindin og verkalýðnum hótað „Kristrún, það er ljótt að plata“ Stjórnendur svartsýnni en þeir hafa verið frá 2020 Bein útsending: Sitja fyrir svörum vegna vaxtahækkunar Ráðinn sviðsstjóri fyrirtækjasviðs Olís Hækka stýrivexti Genis á Siglufirði í söluferli: Ekki forsendur fyrir vexti á Íslandi Telja útboð á heilsurækt í Eyjum sniðið að World Class Spáir hækkun stýrivaxta í fyrramálið Skiptastjóri Play kærir úrskurð um vanhæfi Spá óbreyttum stýrivöxtum Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Sjá meira