Skipting í Alexis Sanchez kapphlaupinu: City út og Chelsea inn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. janúar 2018 09:15 Alexis Sanchez. Vísir/Getty
Chelsea hefur nú áhuga á því að kaupa Alexis Sanchez frá Arsenal í janúar en þetta kemur fram hjá Sky Sports. Knattspyrnustjórinn Antonio Conte er mjög hrifinn af Sílemanninum og talaði um það á föstudaginn var að hann hafi reynt að kaupa hann frá Udinese þegar Conte var stjóri Juventus. Í gær tilkynnti Manchester City að félagið hefði ekki lengur áhuga á að kaupa Alexis Sanchez og þá leit allt út fyrir að leikmaðurinn væri á leiðinni til Manchester United. Nú hefur Chelsea hinsvegar blandað sér í kapphlaupið þótt að Englandsmeistararnir eigi enn eftir að gera formlegt tilboð í leikmanninn samkvæmt heimildum Sky Sports.Reports this evening that Chelsea will rival Man Utd for the signature of Alexis Sanchez. Conte probably doesn't even want Sanchez, just wants to wind up Mourinho. pic.twitter.com/5yLjyjlDQd — Coral (@Coral) January 15, 2018 Hvort að Conte nái að stela Alexis Sanchez af Mourinho verður að koma í ljós en mestar líkur eru ennþá á því að leikmaðurinn endi sem leikmaður Manchester United. Miðað við það sem hefur gengið á í samskiptum Conte og Mourinho þá þætti Ítalanum nú örugglega ekkert leiðinlegt að eyðileggja þessi kaup fyrir kollega sínum. Manchester United er sagt tilbúð að borga Sanchez meira en 350 þúsund pund á viku ef hann kemur á Old Trafford en það eru 49,7 milljónir íslenskra króna.The Alexis Sanchez transfer saga summed up perfectly. pic.twitter.com/TRhKAP3Efd — GeniusFootball (@GeniusFootball) January 16, 2018
Enski boltinn Mest lesið „Þreytuleg mistök og fáum þrjú mörk á okkur í seinni“ Fótbolti Meðvitaður um stöðu sína hjá Man Utd en vill ólmur vera áfram Enski boltinn Telur sig eiga heima í íslenska landsliðinu Handbolti Uppgjör: Holland - Ísland 4-0 | Hollendingar fara dansandi inn á EM Fótbolti Myndaveisla frá veisluhöldum Hollands í Rotterdam Fótbolti Åge eftir tapið í Rotterdam: Höfðum ekki sama hraða og á Wembley Fótbolti Óhugnanlegt slys á Íslandsmeistaramótinu í kappakstri mótorhjóla Sport Skúli Óskarsson er látinn Sport „Þeir eru bara með gæði fram á við og í öllu liðinu“ Fótbolti „Þreytumerki eftir að þeir skoruðu þriðja markið“ Fótbolti Fleiri fréttir Meðvitaður um stöðu sína hjá Man Utd en vill ólmur vera áfram Reynir aftur að fá Bale til Wrexham: „Hann má spila golf hvenær sem er“ Fyrrum fyrirliði Liverpool liggur þungt haldinn á spítala Sonur Dannys Mills vann silfur á EM í frjálsum Van Gaal hrósar Liverpool fyrir að ráða Slot Shaw skýtur á Ten Hag og læknateymi United: „Ég hefði aldrei átt að spila“ Stjórnarformaður Liverpool staðráðinn í að spila leiki utan Englands Chelsea vann kapphlaupið um Adarabioyo Maðurinn sem skallaði Roy Keane sakfelldur fyrir líkamsárás Öll liðin nema eitt vildu halda VAR í ensku úrvalsdeildinni Leikmannasamtök ensku úrvalsdeildarinnar beita sér gegn eyðsluþaki Arteta vill fá leikmann sem skoraði gegn Íslandi Ætla að banna starfsfólki United að borða með leikmönnunum Sádagullið heillar De Bruyne: „Þú ert að tala um ótrúlegar upphæðir“ City fer í mál við ensku úrvalsdeildina: „Ógnarstjórn meirihlutans“ Helsti styrktaraðili Liverpool sakaður um tengsl við hryðjuverkasamtök Segir enska knattspyrnusambandið vilja dæma Paquetá í lífstíðarbann Steve Bruce orðinn þreyttur á atvinnuleysinu: „Leicester, þið vitið hvar þið finnið mig“ United og Liverpool berjast um miðvörð Sporting Hareide yngri orðinn yfirmaður íþróttamála hjá ensku C-deildarliði Styttist í að Ten Hag fái að vita hvað framtíðin ber í skauti sér Maresca tekinn við hjá Chelsea Ferguson hafi átt leynilegan fund í Lundúnum Fyrrverandi leikmaður Arsenal og Everton alvarlega veikur á spítala Tvítugur norskur strákur vann Fantasy leik ensku úrvalsdeildarinnar Markavélin spennt fyrir skiptum til Arsenal Ekkert verður af kaupunum á Everton Bellamy tekur tímabundið við en Lampard er líklega langtímalausnin Red Bull ryður sér til rúms í enska boltanum Breyta deildabikarnum til að létta á leikjaálagi bestu liðanna Sjá meira