Hækka verðmat á Icelandair Group um fimmtung Kristinn Ingi Jónsson skrifar 18. janúar 2018 08:30 Hlutabréf í Icelandair Group snarhækkuðu um 4,6 prósent í verði í gær. Vísir/Vilhelm
Hagfræðideild Landsbankans hefur hækkað verðmat sitt á Icelandair Group um 22 prósent og metur gengi bréfanna á 18,4 krónur á hlut. Það er um 16 prósentum hærra en markaðsgengi bréfanna eftir lokun markaða í gær. Er fjárfestum þannig ráðlagt að kaupa hlutabréf í félaginu. Í verðmatinu benda greinendur bankans meðal annars á að vísbendingar séu um að tekjur á hvern sætiskílómetra muni ekki dragast enn frekar saman og að vöxtur félagsins muni leiða til bættrar rekstrarniðurstöðu. Tekið er fram að hækkandi olíuverð hafi vissulega neikvæð áhrif á afkomu Icelandair en hins vegar séu margir keppinautar félagsins berskjaldaðri fyrir olíuverðshækkunum. Hagfræðideildin spáir því að EBITDA – rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta – verði 189,4 milljónir dala á þessu ári. Til samanburðar var EBITDA ársins 2016 tæpar 220 milljónir dala og þá gera sérfræðingar bankans ráð fyrir að EBITDA Icelandair hafi verið 168 milljónir dala á síðasta ári.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Mest lesið Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Viðskipti innlent Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Viðskipti innlent Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Viðskipti erlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Sjá meira