EyeSight öryggiskerfið nú staðabúnaður
Nýr XV státar af fjölda uppfærðra tæknilausna. Nægir þar að nefna nýtt upplýsinga- og afþreyingarkerfið í XV sem hefur verið endurhannað frá grunni. Kerfið býður m.a. upp á raddstýrða stjórnun ýmissa stjórntækja til að auka öryggi og minnka truflun við akstur. Hið margverðlaunaða EyeSight-öryggiskerfi er nú staðalbúnaður í XV. Kerfið hjálpar ökumanni að gera aksturinn eins öruggan og frekast er kostur auk þess að geta við ákveðnar aðstæður brugðist við og framkvæmt neyðarhemlun. EyeSight á sinn þátt í því að Umferðaröryggisstofnun Bandaríkjanna metur bílana frá Subaru einhverja þá öruggustu sem völ er á.
X-Mode
Á meðal nýrra tæknilausna XV er X-Mode, stilling sem notuð er við akstur í erfiðum aðstæðum. Með henni tekur X-Mode yfir stjórn vélarinnar, gírskiptingarinnar, aldrifsins og hemlanna til að samhæfa stjórn bílsins og koma honum á sem öruggastan hátt í gegnum krefjandi hindranir. Einnig heldur X-Mode bílnum á stöðugum hraða þegar ekið er niður brekku. Einnig má nefna að þegar XV nálgast stöðugleikamörkin endurstillist dreifing togs til hjólanna ásamt vélarafli og hemlunarþyngd til að halda réttri stefnu bílsins á veginum. Öryggiskerfið hjálpar ökumanni einnig að taka skarpar beygjur þegar þess gerist þörf.
Stögugleiki Boxer
Eitt aðalsmerkja Subaru eru flötu Boxervélarnar með láréttu stimplunum sem hreyfast í gagnstæðar áttir í blokkinni. Boxervélin er ein helsta ástæða þess hve Subaru er stöðugur á veginum og afkastamikill í akstri enda er þyngdarmiðja bílanna lægri en í flestum öðrum tegundum. Subaru hefur einnig hannað nýjan alhliða undirvagn fyrir XV sem allir bílar Subaru verða á í framtíðinni. Nýi SGP-undirvagninn (Subaru Global Platform) viðheldur ekki einungis rómuðum stöðugleika, afköstum og akstursánægju heldur gegnir hann líka lykilhlutverki í öryggishönnun bílsins. Stífni undirvagnsins er breytt frá fyrri gerð ásamt því sem gerðar voru breytingar á fjöðrun og jafnvægisstöngum, m.a. til að dempa betur högg frá vegi og jafna út ójöfnur til að auka þægindin og draga úr þreytu í lengri ferðum.
Tvær útfærslur
BL býður nýjan XV í tveimur útfærslum sem báðar eru búnar 114 hestafla 1,6 lítra 16 ventla DOHC bensínvél. Grunnverð bílsins er 5.290.00 en hægt er að kynna sér nánar búnað bílsins á heimasíðu BL, þar á meðal upplýsingar um sjálfvirka hraðastillinn, sveigju- og akgreinavarann, akgreinastýringuna og fleira sem öryggiskerfið EyeSight býður upp á, auk upplýsinga um margháttaðan aukabúnað sem hægt er að fá með nýju XV.

