Breski vogunarsjóðurinn Attestor Capital hefur selt ríflega hálfs prósents eignarhlut í Arion banka eftir að bankinn var skráður á hlutabréfamarkað um miðjan júnímánuð. Sjóðurinn seldi þriggja prósenta hlut í útboði bankans og hefur þannig á skömmum tíma minnkað hlut sinn um 3,5 prósent af hlutafé bankans.
Attestor, sem kom fyrst inn í hlutahafahóp Arion banka í mars í fyrra, átti 8,92 prósenta hlut í bankanum í lok síðasta mánaðar. Til samanburðar var eignarhluturinn um 12,44 prósent áður en Arion banki var skráður á markað í júní en sjóðurinn keypti fyrr á árinu tveggja prósenta hlut í bankanum.
Engar söluhömlur gilda um tveggja prósenta hlut í eigu Attestor eftir hlutafjárútboðið, samkvæmt skilmálum hlutafjárútboðsins, en að öðru leyti má vogunarsjóðurinn ekki selja hlutabréf sín í bankanum í 180 daga eftir að útboðinu lauk.
Samkvæmt heimildum Markaðarins varð breyting á fjárfestingastefnu vogunarsjóðsins eftir að sjóðsstjórinn Pierre Bour, sem var meðeigandi Attestor Capital, lét af störfum fyrr á árinu. Var þá ákveðið að draga úr vægi Arion banka í eignasafni sjóðsins.
Engar breytingar hafa orðið á eignarhlut annarra stærstu hluthafa bankans eftir skráningu.
Við lokun markaða í gær nam hlutabréfaverð Arion banka 89 krónum á hlut og var um nítján prósentum hærra en í útboði bankans fyrr í sumar þegar Kaupþing og Attestor seldu um 29 prósenta hlut á genginu 75 fyrir samtals um 39 milljarða.
Kaupendur bréfanna voru að stærstum hluta erlendir fjárfestingasjóðir á meðan íslenskir fjárfestar – almenningur, fagfjárfestar og lífeyrissjóðir – fengu aðeins að kaupa samanlagt um 9 prósenta hlut.
