Uppræta þarf kynbundinn launamun Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar 1. febrúar 2018 17:00 Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra.
Atvinnuþátttaka á íslenskum vinnumarkaði mælist hvað mest meðal OECD-ríkjanna og er hlutfall kvenna á vinnumarkaði með því hæsta í heiminum. Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, segir kynbundinn launamun meinsemd og að unnið sé að því að uppræta hann. "Ég legg ríka áherslu á að lög um jafnlaunavottun nái fram að ganga og á áframhaldandi samstarf ráðuneytisins við samtök aðila vinnumarkaðarins til að vinna að jafnlaunamálum og jafnrétti á vinnumarkaði. Á þessu þingi mun ég mæla fyrir þingsályktun um aðgerðir gegn ofbeldi í íslensku samfélagi og frumvörpum um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna og um jafna meðferð á vinnumarkaði,“ segir Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra. Mikil kynjaskipting einkennir vinnumarkaðinn og staðalmyndir kynjanna hefta valfrelsi stúlkna og drengja, segir Ásmundur „Ábyrgð á heimilisstörfum hvílir enn frekar á konum. Þær taka mun lengra fæðingarorlof og sinna ólaunaðri vinnu við umönnun barna og eldri foreldra í meiri mæli en karlar. Margar konur velja hlutastörf til að geta betur samræmt vinnu- og fjölskylduábyrgð. Allir þessir þættir byggjast á rótgrónum hugmyndum um staðalmyndir kynjanna og hafa margvísleg neikvæð áhrif á einstaklinga, vinnumarkaðinn og samfélagið í heild sinni.“Atvinnuþátttaka með því mesta í heiminum Af OECD-ríkjunum mælist atvinnuþátttaka hvað mest á Íslandi og hlutfall kvenna á vinnumarkaði í alþjóðlegum samanburði með því hæsta sem þekkist. Þrátt fyrir það eru fáar konur sýnilegar í stjórnunarstöðum og karlmenn fámennir í störfum sem tengjast umönnun, aðhlynningu og kennslu að sögn Ásmundar. Horfa þurfi til aðgerða sem geta snúið þessari þróun við. Jafnlaunavottun er ætlað að framfylgja gildandi jafnréttislögum sem leggja bann við að konum og körlum séu greidd mismunandi laun fyrir sömu eða sambærileg störf nema slíkt sé unnt að réttlæta með málefnalegum ástæðum. „Jafnlaunavottun miðar einnig að því að auka starfsánægju og trú starfsfólks á að mannauðsstjórnun atvinnurekanda sé fagleg og að bæta sýn stjórnenda á starfsmanna- og launamál, auðvelda þeim starfsmannahald og bæta rökstuðning við launaákvarðanir. Afraksturinn verður gagnsærra og réttlátara launakerfi,“ segir Ásmundur. „Frá árinu 1961 hefur vilji löggjafans verið skýr. Kynbundinn launamunur er engu að síður meinsemd sem ekki hefur tekist að vinna bug á. Í ljósi þess hversu ríkir þeir hagsmunir eru að einstaklingum sé ekki mismunað á grundvelli kynferðis um kaup og kjör er ég þeirrar skoðunar að lögfesting jafnlaunavottunar hafi verið nauðsynleg.“Hvernig verður eftirliti með jafnlaunavottun háttað? „Samtök aðila vinnumarkaðarins annast eftirlit með því að fyrirtæki og stofnanir með 25 starfsmenn eða fleiri öðlist vottun og endurnýi hana á þriggja ára fresti. Jafnréttisstofa getur beint þeim fyrirmælum til hlutaðeigandi fyrirtækis eða stofnunar að gera úrbætur innan hæfilegs frests að viðlögðum dagsektum. Ég á ekki von á öðru en að jafnlaunavottun muni skila góðum árangri til aukins jafnréttis á vinnumarkaði. Velferðarráðuneytið hefur í samstarfi við Hagstofu Íslands og aðila á vinnumarkaði staðið fyrir gerð rannsókna á kynbundnum launamun og mun framvegis birta niðurstöður slíkra rannsókna annað hvert ár m.a. til að fylgja lögfestingu jafnlaunavottunar eftir,“ segir Ásmundur.Stjórnvöld bregðast við #metoo Í kjölfar #metoo byltingarinnar hefur hulunni verið svipt af kynferðislegri áreitni og ofbeldi sem konur verða fyrir á íslenskum vinnumarkaði. Ásmundur segir stjórnvöld þurfi að bregðast við af festu. „Unnið er að skipan nefndar til að meta umfang kynferðislegrar áreitni, kynbundinnar áreitni, ofbeldis og eineltis á íslenskum vinnumarkaði og aðgerðir vinnuveitenda í tengslum við slík mál. Einnig verður skipaður aðgerðahópur til að vinna markvisst gegn þessum vanda á vinnustöðum. Einnig er gert ráð fyrir að verkefnastjóri verði ráðinn til að fylgja þessum málum eftir. Þá er í smíðum áætlun um aðgerðir gegn ofbeldi í íslensku samfélagi þar sem m.a. er kallað eftir fjölbreyttari meðferðarúrræðum fyrir gerendur í ofbeldismálum. Starfshópi verður falið að kortleggja og skilgreina þjónustuþörf fyrir gerendur í ofbeldismálum og þá sem eru í hættu á að fremja ofbeldisbrot með það að markmiði að koma í veg fyrir endurtekið ofbeldi og ofbeldisbrot almennt.“Sjá nánari umfjöllun í sérblaði Fréttablaðsins, Konur í atvinnulífinu.
Mest lesið Fór yfir breytingarnar sem verði ekki allar þægilegar fyrir starfsfólk Viðskipti innlent Fær endurgreiðslu þar sem sjónvarpið í herberginu virkaði ekki Neytendur Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Viðskipti innlent Dældi dísil á bensínbíl en fær kostnaðinn endurgreiddan Neytendur Algengustu og neyðarlegustu mistökin í tölvupóstum Atvinnulíf Kristín nýr framkvæmdastjóri Eflu Viðskipti innlent Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Viðskipti innlent Sýnishornið of ólíkt borðplötunni sem skilaði sér heim Neytendur Sammála um aukna verðbólgu í september Viðskipti innlent Tekur við stöðu framkvæmdastjóra LÍS Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fór yfir breytingarnar sem verði ekki allar þægilegar fyrir starfsfólk Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Sammála um aukna verðbólgu í september Tekur við stöðu framkvæmdastjóra LÍS Kristín nýr framkvæmdastjóri Eflu Taka tvær Airbus-þotur til á leigu Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Vilja selja Landsbankann Lísbet nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs Ráðin forstöðumaður Trygginga hjá Landsbankanum Samdráttur hafinn í byggingariðnaði sem skapi efnahagslegan vítahring Yrði fljótt kvíðinn með aleiguna í Bitcoin Kormákur og Skjöldur yfirgefa Leifsstöð Egill Örn inn fyrir Stefán hjá Solid Clouds Nýtti glugga þegar hann opnaðist og þurfti ekki að kaupa fyrirtækið til baka Breytingar á tollskrá megi ekki grafa undan íslenskri framleiðslu Matvöruverslanir kattslakar en lyfjarisi fylgist grannt með Stofnar einkahlutafélagið Uppselt ehf. Lítið fékkst upp í háar kröfur í bú Blackbox Bein útsending: Borgar sig að vanmeta menntun? Breytir tollflokkun pitsaosts eftir allt saman Ueno snýr aftur og Haraldur framkvæmdastjóri „Hvert á ég að ráðstafa séreigninni?“ „Óhóflegt gjald“ fyrir símanotkun í Bretlandi heyri fljótt sögunni til Elín Tinna nýr framkvæmdastjóri 66°Norður á Íslandi Heiðrún Lind kaupir í Sýn Ráðin forstöðukona markaðsmála hjá Olís Eldri stjórnendur sætti sig oftar við slæma hegðun og frammistöðu Farþegum til Íslands fjölgaði um 21 prósent Ekkert tillit tekið til aðstæðna og ljóst að vöruúrval minnki Sjá meira