Vinna að sameiningu Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins Atli Ísleifsson skrifar 11. október 2018 13:18 Seðlabanki Íslands. Vísir/Anton
Vinna er hafin við það að sameina Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins. Sameiningin skal unnin með þeim hætti sem eflir traust og tryggir skilvirkni við framkvæmd þjóðhagsvarúðar og fjármálaeftirlits. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Í tilkynningunni kemur fram að ráðherranefnd um efnahagsmál og endurskipulagningu fjármálakerfisins hafi ákveðið að hefja endurskoðun lagaumgjarðar um peningastefnu, þjóðhagsvarúð og fjármálaeftirlit. Vinnan skuli miða að því að viðhalda verðbólgumarkmiði sem meginmarkmiði peningastefnunnar. „Fyrirliggjandi eru skýrslur sérfræðinga sem bregða birtu á ýmis viðfangsefni og tækifæri til úrbóta við framkvæmd peningastefnu og umgjörð þjóðhagsvarúðar og fjármálaeftirlits, nú síðast vinna starfshópa um endurskoðun á ramma peningastefnunnar og endurskoðun laga um fjármálaeftirlit frá því í júní sl. Endurskoðun þessi kallar á eftirfarandi:breytingar á lögum sem lúta m.a. að peningastefnunni, núverandi verkefnum Seðlabankans og yfirstjórn,breytingar á lögum sem lúta að fyrirkomulagi þjóðhagsvarúðar,breytingar á lögum um fjármálaeftirlit,breytingar sem lúta að varanlegu fyrirkomulagi fjárstreymistækis,breytingar á yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans um verðbólgumarkmið,breytingar á verklagi í peningastefnunefnd Seðlabankans. Meginleiðarljós vinnunnar verður að efla traust, gagnsæi og skilvirkni við yfirstjórn efnahagsmála. Miðað skal við að viðhalda verðbólgumarkmiði sem meginmarkmiði peningastefnunnar og sjálfstæði Seðlabankans og peningastefnunefndar hans til að beita stjórntækjum til að ná því en gera viðeigandi breytingar sem efla traust og auka gagnsæi. Ennfremur skal miðað við að sameina Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitið með þeim hætti sem eflir traust og tryggir skilvirkni við framkvæmd þjóðhagsvarúðar og fjármálaeftirlits. Yfirstjórn þessa verkefnis verður í höndum ráðherranefndar um efnahagsmál og endurskipulagningu fjármálakerfisins sem í sitja forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra. Á vegum ráðherranefndarinnar starfar verkefnisstjórn um peningastefnu, þjóðhagsvarúð og fjármálaeftirlit, skipuð af forsætisráðherra. Hún er skipuð fulltrúum forsætisráðuneytis og fjármála- og efnahagsráðuneytis auk tengiliða frá Seðlabankanum og Fjármálaeftirlitinu. Verkefnisstjórnin skal skila drögum að lagafrumvörpum til ráðherranefndar eigi síðar en 28. febrúar 2019,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Lífið samstarf Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira