Byltingin mun fá sérstaka athygli í ár og til að sýna því samstöðu eru konur sem ætla á Edduna hvattar til að klæðast rauðum eða svörtum fatnaði. Þá verður notað myllumerkið #égerhér, fyrir viðburðinn á samfélagsmiðlum, en setningin á að sýna stuðning við þær sem hafa opnað sig um kynferðislega áreitni og ofbeldi sem og að túlka háværa rödd kvenna innan kvikmynda- og sjónvarpsgeirans hér á landi.
Þá mun upphafsatriði Eddunnar í ár vera í þeirra höndum og þær ætla að deila út barmerkjum fyrir þá sem vilja um kvöldið. #Metoo byltingin hefur fengið veigamikið hlutverk á hátíðum á borð við Golden Globe og Bafta á þessu ári og flott framtak að sú sé einnig raunin hér á landi.
Þáttaröðin Fangar hlýtur flestar tilnefningar til Edduverðlauna í ár, eða alls 14 tilnefningar. Undir trénu var með flestar tilnefningar þeirra kvikmynda sem tilnefndar eru eða alls 12 talsins. Þá hlýtur kvikmyndin Svanurinn 9 tilnefningar og þáttaröðin Stella Blómkvist 8 tilnefningar.
