Fór holu í höggi og gaf BMW M760i í góðgerðarmál Finnur Thorlacius skrifar 28. september 2017 12:30 BMW M760i er 601 hestafla lúxuskerra sem kostar skildinginn.
Ástralinn Jason Day fór holu í höggi á BMW Championship golfmótinu um daginn og vann með því lúxuskerruna BMW M760i, en grunnverð þess bíls er 156.700 dollarar. Jason Day ætlar ekki að eiga þennan bíl þrátt fyrir að hafa unnið fyrir honum, heldur gefa hann til góðgerðarmála og BMW ætlar reyndar að bæta við 100.000 dollurum sem einnig fer til góðgerðarmála. Svo vill til að Jason Day er á mála hjá bílaframleiðandanum Lexus og er því vært stætt á því að ferðast um á BMW bíl. Í því ljósi kemur kannski ekki svo á óvart að hann skuli gefa bílinn til góðgerðarmála. BMW M760i er engin smákerra, en undir húddi hans lúrir 601 hestafla V12 vél með 6,6 lítra sprengirými. Þessi gríðaröfluga vél hendir þessum 2,3 tonna stóra bíl í hundraðið á litlum 3,6 sekúndum. Bíllinn er fjórhjóladrifinn og með átta gíra sjálfskiptingu. BMW hefur haft þann háttinn á að hver sá sem fer holu í höggi á BMW Championship mótunum á hverju ári fær BMW bíl í vinning. Það gerðist síðast árið 2013 þegar bandaríski kylfingurinn Hunter Mahon fór holu í höggi einmitt á sömu 17. braut sama vallar og Jason Day nú og þá fékk Mahon BMW i3 rafmagnsbíl í verðlaun.
Mest lesið Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Innlent Óvænt ávarp forsætisráðherra: „Við munum verja lýðveldið Ísland“ Innlent Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Innlent Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Erlent „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Innlent Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Innlent Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Erlent Tveir menn fjárkúguðu ungan dreng Innlent Þykir leitt að hafa valdið uppnámi Innlent Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Erlent