Áralöng deila um útleigu geymslu við Hringbraut Jóhann Óli Eiðsson skrifar 27. febrúar 2017 07:00 Erjur nágrannanna eiga sér langa sögu. vísir/gva
Úrskurðarnefnd um umhverfis- og auðlindamál hefur fellt úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík þess efnis að ekki verði lagðar dagsektir á fasteignareiganda að Hringbraut 73. Hann hefur leigt út geymslurými í kjallara sem herbergi. Deilan hefur staðið yfir í um áratug. Í húsinu, sem er tveggja hæða, eru fjórar íbúðir og eiga tveir aðilar tvær íbúðir hvor um sig. Fólkið á neðri hæðinni hefur leigt út hluta geymslurýmisins en það er sameign. Eigendur efri hæðarinnar segja mikið ónæði stafa af þessu og vilja að útleigan hætti. Álits áfrýjunarnefndar húsamála var leitað og skilaði hún því árið 2013. Taldi hún útleiguna heimila að fengnu leyfi byggingarfulltrúa. Það leyfi hefur hins vegar ekki fengist. Eigendur efri hæðarinnar höfðuðu dómsmál árið 2014 og kröfðust þess að viðurkennt yrði að óheimilt væri að leigja geymsluna út að viðlögðum dagsektum. Því máli var vísað frá þar sem ákvörðun byggingarfulltrúa lá ekki fyrir. Í niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar kemur fram að byggingarfulltrúi Reykjavíkur telur notkun kjallararýmisins ólögmæta. Í samskiptum hans og lögmanns eigenda efri hæðarinnar kemur hins vegar fram að embættið telji sig ekki fært um að fullyrða hver raunveruleg notkun þess sé. Af þeim sökum synjaði það áður álagningu dagsekta. Nefndin taldi að embættið gæti rannsakað málið betur og felldi því hina kærðu ákvörðun úr gildi.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Innlent Fleiri fréttir Virðast ætla að opna Kringluna á þriðjudaginn Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Sjá meira