Fimm og tíu þúsund kallarnir er 87% alls reiðufjár Kjartan Kjartansson skrifar 5. júlí 2017 18:41 Mikil útbreiðsla stærstu seðlanna hefur verið talin vísbending um skattsvik. Vísir/Valli
Notkun reiðufjár á Íslandi virðist færast í aukana jafnvel þó að aðeins 2,2% landsframleiðslunnar sé seðlum og smápeningum. Fimm og tíu þúsund króna seðlar sem hugmyndir voru um að taka úr notkun eru 87% reiðufjár í umferð. Þetta á meðal þess sem kemur fram í grein um stöðu reiðufjár á Íslandi á vefsíðu Íslandsbanka sem Björn Berg Gunnarsson, fræðslustjóri bankans skrifar. Mikil umræða skapaðist um reiðufé eftir að Benedikt Jóhannesson, fjármálaráðherra, viðraði þá hugmynd að taka fimm og tíu þúsund króna seðla úr umferð. Notkun reiðufjár er lítil á Íslandi eins og á Norðurlöndunum almennt en engu að síður eru merki um að hún sé að verða algengari. Vísar Íslandsbanki til nýútgefinnar skýrslu Seðlabankans um fjármálainnviði þar sem fram kemur að notkun annarra greiðslumöguleika en greiðslukorta hafi aukist úr 9% í 29% í svonefndum staðgreiðsluviðskiptum. Þrátt fyrir þessa aukningu er notkun reiðufjár fimmfalt hærri á Evrusvæðinu.Ýmsar upplýsingar um reiðufé er að finna í skýrslu Seðlabankans um fjármálainnviði.Vísir/Anton BrinkAukin ferðamennska gæti skýrt meiri seðlanotkun að hluta tilÍslandsbanki leiðir líkum að því að hægt sé að rekja hluta aukningar í notkun reiðufjár til aukinnar ferðamennsku. Tölur Seðlabankans sýna að 87% alls reiðufjár í umferð á Íslandi sé í formi fimm og tíu þúsund króna seðla. Samtals eru yfir fimmtíu milljarðar króna í umferð í formi þessara tveggja seðla. Nefnd fjármálaráðherra ályktaði að svo mikil notkun seðlanna væri vitnisburður um að skattsvik. Hægt væri að draga úr þeim með að taka seðlana úr umferð.
Mest lesið Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Out of Office póstarnir: Þeir bestu og þeir glötuðustu Atvinnulíf Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Vekja athygli á innköllun leikfangs Neytendur Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Sjá meira