„Ferðaþjónustan er ekki bóla sem mun springa“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 20. mars 2017 11:00 Helga Árnadóttir er framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.
Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að horfa þurfi á heildarmyndina þegar rætt er um ferðaþjónustuna og framtíð hennar hér á landi. Hún hafi vissulega þungar áhyggjur af því að ferðaheildsalar séu byrjaðir að afbóka ferðir hingað til lands vegna óhagstæðs gengis enda sé það nýtt. Helga ræddi þessi mál í Bítinu í morgun. Hún segir ferðaþjónustuaðila ekki vilja fækka ferðamönnum á þeim forsendum að hingað sé of dýrt að koma, en eins og ítrekað hefur verið fjallað um hefur ferðamönnum fjölgað gríðarlega hér á seinustu árum. Er því spáð að það komi 2,3 milljónir ferðamanna hingað til lands í ár. „Við viljum ekki fækka ferðamönnum á þessum forsendum og ef við stöndumst ekki upplifunina hjá þeim sem koma. Ef verðlagning og gæði fara ekki saman þá erum við komin í óefni því greinin á svo mikið undir orðsporinu,“ sagði Helga. Hins vegar væri það ljóst að það að fá á sig 25 til 30 prósent högg á nokkrum mánuðum bæði hvað varðar gengisþróun og launaþróun gangi ekki til lengdar.Ekki hrun í ferðaþjónustunni framundan „Við höfum áhyggjur af þessari þróun. Við horfum til þess að ferðaþjónustuvörurnar eru að hækka um tugi prósenta horft fram í tímann núna þannig að við höfum stórkostlegar áhyggjur en á sama tíma vil ég vera bjartsýn og markaðirnir eru með mismunandi verðteygni. [...] En hvað varðar „er ekki bara fínt að fækka þeim,“ og allt þetta... þó að við séum að hafa áhyggjur þá erum við ekki að horfa á eitthvað hrun í íslenskri ferðaþjónustu,“ sagði Helga. Hún sagði mikilvægt að staldra við og horfa á heildarmyndina, hvernig eigi að byggja greinina upp til framtíðar og tryggja verðmætasköpun í henni. Aðspurð hverjir eigi að horfa heildarmyndina með ferðaþjónustunni benti Helga á stjórnvöld og sveitarfélögin.Ferðamennirnir ekki eins og olía Norðmanna „Það er ofboðslega mikið undir. [...] Maður hugsar að menn telji ferðamennina af því að þeim hafi fjölgað svo mikið að þeir séu eins og olía Norðmanna að við getum bara skrúfað örlítið frá og fyrir eins og okkur hentar en það er bara ekki þannig. [...] Þannig að það hlýtur að vera á ábyrgð stjórnvalda að koma af fullri alvöru og ábyrgð að borðinu því að lokum hlýtur þetta að vera hugmyndin um að tryggja verðmætasköpunina í landinu því það er svo það sem við byggjum hagsældina á.“ Þá tók hún undir það með þáttastjórnendum að þetta væri því miður eitthvað sem hefði oft verið rætt áður. „Það er svolítið það sem manni hefur fundist síðustu mánuði og ár svo sem eins og stjórnvöld, Seðlabankinn eða hver það er bara hafi ekki haft fulla trú á greininni, haldi að þetta sé einhver bóla sem muni springa en ferðaþjónustan er ekki bóla sem mun springa.“ Hlusta má á viðtalið við Helgu í heild sinni í spilaranum hér að neðan.
Tengdar fréttir Er Ísland dýrasta land í heimi? Erlendir ferðamenn sem hingað koma hafa kvartað yfir háu verðlagi og þá hafa fyrirtæki í ferðaþjónustu haft áhyggjur af mikilli styrkingu krónunnar. Við erum komin að ýmsum þolmörkum í hagkerfinu þegar ferðaþjónustan er annars vegar. Er Ísland uppselt? Og er Ísland dýrasta land í heimi? 17. mars 2017 10:00 Umfjöllun BBC um ferðamenn á Íslandi: „Væri enn betra ef það væri færra fólk hérna“ Ítarleg umfjöllun er á vef BBC um ástæður þess að Ísland sé orðinn einn af vinsælustu áfangastöðum ferðamanna í heiminum. 22. febrúar 2017 23:30 Helmingur ferða til Íslands afbókaður vegna verðlags Fyrirtæki í ferðaþjónustu hafa mörg hver lýst yfir áhyggjum af styrkingu krónunnar og ferðamenn á sama tíma kvartað yfir háu verðlagi hér á landi. 17. mars 2017 18:54 Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Fleiri fréttir Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjá meira
Er Ísland dýrasta land í heimi? Erlendir ferðamenn sem hingað koma hafa kvartað yfir háu verðlagi og þá hafa fyrirtæki í ferðaþjónustu haft áhyggjur af mikilli styrkingu krónunnar. Við erum komin að ýmsum þolmörkum í hagkerfinu þegar ferðaþjónustan er annars vegar. Er Ísland uppselt? Og er Ísland dýrasta land í heimi? 17. mars 2017 10:00
Umfjöllun BBC um ferðamenn á Íslandi: „Væri enn betra ef það væri færra fólk hérna“ Ítarleg umfjöllun er á vef BBC um ástæður þess að Ísland sé orðinn einn af vinsælustu áfangastöðum ferðamanna í heiminum. 22. febrúar 2017 23:30
Helmingur ferða til Íslands afbókaður vegna verðlags Fyrirtæki í ferðaþjónustu hafa mörg hver lýst yfir áhyggjum af styrkingu krónunnar og ferðamenn á sama tíma kvartað yfir háu verðlagi hér á landi. 17. mars 2017 18:54