Tekjur Tempo námu 1.400 milljónum og jukust um 41 prósent milli ára Hörður Ægisson skrifar 20. mars 2017 13:48 Ágúst Einarsson, framkvæmdastjóri Tempo, segir rekstur þessa árs fara "vel af stað og ljóst að það stefnir í enn eitt frábært rekstrarár.”
Heildartekjur hugbúnaðarfyrirtækisins Tempo, dótturfélags Nýherja, námu samtals um 13 milljónum Bandaríkjadala, jafnvirði um 1.400 milljóna króna, í fyrra og jukust um 41 prósent á milli ára. Meginhluti tekna fyrirtækisins kom vegna starfsemi þess erlendis en Bandaríkin er stærsti markaður Tempo, auk Bretlands og Þýskalands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Tempo en þar er haft eftir Ágústi Einarssyni, framkvæmdastjóra fyrirtækisins, að árið 2016 hafi reynst viðburðarríkt. „Umsvifin jukust verulega og hið sama gerðu tekjurnar. Á þessu ári munum við svo kynna fjölmargar nýjungar sem munu auka virði lausna Tempo til muna fyrir viðskiptavini okkar. Við höfum verið að þróa samþættingu kerfa og gera þau enn notendavænni. Þannig auðveldum við viðskiptavinum okkar enn frekar að safna gögnum, vinna úr þeim og taka mikilvægar ákvarðanir í rekstri. Rekstur ársins 2017 fer vel af stað og ljóst að það stefnir í enn eitt frábært rekstrarár,” segir Ágúst. Á árinu 2016 bættust ríflega 2.800 viðskiptavinir við hjá Tempo og starfsfólki fyrirtækisins í Norður Ameríku heldur áfram að fjölga jafnt og þétt í takt við aukin umsvif. Þá segir í tilkynningu félagsins að meðal nýrra viðskiptavina Tempo séu fyrirtæki á borð við Mercedes Benz, Starbucks, Porsche og Estee Lauder. Nýherji kannar sölu á meirihluta í Tempo Ívar Kristjánsson, stjórnarformaður Nýherja, sagði í ræðu sinni á nýafstöðnum aðalfundi að Nýherji gæti gengið frá sölu á meirihluta í Tempo til erlendra fjárfesta síðar á árinu. „Við sjáum það fyrir okkur að niðurstaða slíks ferlis geti mögulega falið í sér sölu á meirihluta hlutafjár Tempo en þó með áframhaldandi aðkomu Nýherja sem eiganda,“ sagði Ívar. Stjórnarformaðurinn sagði vinnu að undirbúningi söluferlisins miða ágætlega, en það er í höndum fjárfestingarbankans AGC Partners í Boston, og að dregið geti til tíðinda á árinu. Ekki væri hægt að segja hvenær söluferli geti hafist.
Mest lesið Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Viðskipti innlent Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Viðskipti innlent „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Fleiri fréttir Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Sjá meira