Berglind: Eigum einn gír inni Kjartan Atli Kjartansson skrifar 20. mars 2017 20:30
Snæfell hefur tryggt sér deildarmeistaratitilinn í Domino‘s deild kvenna. Berglind Gunnarsdóttir, sem hefur leikið afar vel á tímabilinu, hlakkar til úrslitakeppninnar og segir liðið eiga meira inni. Snæfellskonur hafa unnið 13 af 14 leikjum sínum á seinni hluta tímabilsins og hefur liðið nú þegar tryggt sér deildarmeistaratitil þrátt fyrir að ein umferð sé eftir. Snæfell hefur leikið frábærlega undanfarin ár og getur orðið fyrsta lið sögunnar til þess að vinna íslandsmeistaratitilinn fjögur ár í röð, eftir að úrslitakeppnin var kynnt til leiks. En hvernig er þetta tímabil í samanburði við undanfarin ár? „Þetta er búið að vera allt öðruvísi. Við vorum lengur að smella en heilt yfir er þetta mjög góður árangur hjá liðinu. Við eigum samt eftir að smella algjörlega saman í úrslitakeppninni og að við eigum hálfan aukagír inni ef ekki heilan,“ segir Berglind. Berglind sjálf hefur leikið afar vel í vetur og vaxið eftir því sem á hefur liðið og segist líða betur líkamlega nú en undanfarin ár. „Ég hef verið að glíma við ýmis meiðsli í gegnum tíðina en nú er öxlin ekki að plaga mig eins mikið og síðustu ár. Heilt yfir líður mér betur líkamlega og þá gerist meira inn á vellinum.“ Í úrslitakeppninni í fyrra fór það ekki framhjá neinum, hverskonar stuðning stelpurnar í Snæfelli fengu frá aðdáendum liðsins. Berglind segir þær vonast eftir samskonar stuðningi í ár, það skipti gríðarlega miklu máli. „Ég held að það verði ekkert öðruvísi í ár. Það styðja allir við bakið á okkur.“ Viðtalið við Berglindi má sjá hér að ofan.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Brentford tók Tottenham í karphúsið Enski boltinn Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Handbolti Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos Fótbolti Fleiri fréttir Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Sjá meira