Sigurður kominn með tvö prósent í VÍS 10. október 2017 10:00 Einkafjárfestar og hlutabréfasjóðir eru umsvifamiklir í hópi stærstu hluthafa VÍS. Hafa lífeyrissjóðir verið að minnka hlut sinn. Fréttablaðið/Anton Brink
Félagið NH fjárfesting, í eigu Sigurðar Sigurgeirssonar, fyrrverandi byggingaverktaka í Kópavogi, keypti í liðinni viku um 0,48 prósenta hlut í tryggingafélaginu VÍS. Eftir viðskiptin á félag hans 1,9 prósenta hlut. Er Sigurður þar með orðinn þriðji stærsti einkafjárfestirinn í hlutahafahópi félagsins á eftir hjónunum Svanhildi Nönnu Vigfúsdóttur stjórnarformanni og Guðmundi Erni Þórðarsyni og fjárfestingafélaginu Óskabeini. Samtals eiga þau hjónin um 8 prósenta hlut í gegnum félagið K2B fjárfestingar, sjóði í stýringu Stefnis og safnreikning Virðingar. Miðað við gengi bréfa í tryggingafélaginu í síðustu viku má ætla að kaupverðið á 0,48 prósenta hlutnum hafi numið liðlega 120 milljónum króna. Miðað við núverandi gengi bréfa félagsins er eignarhlutur Sigurðar metinn á um 470 milljónir króna. Félag Sigurðar komst á lista yfir tuttugu stærstu hluthafa í lok síðasta mánaðar, en það eignaðist fyrst 1,2 prósenta hlut í VÍS í maí síðastliðnum, samkvæmt heimildum. Rétt er þó að geta þess að sumir einkafjárfestar í VÍS eiga talsverða hlutafjáreign í gegnum safnreikning Virðingar sem er skráð með 7,1 prósents hlut í félaginu. – kij
Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira