Fjárfestar færa sig úr hlutabréfasjóðum Kristinn Ingi Jónsson skrifar 21. september 2017 06:00 Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hefur lækkað um rúmlega sjö prósent það sem af er ári. Nær allir hlutabréfasjóðir landsins hafa sýnt neikvæða ávöxtun á sama tíma. vísir/epa
Vísbendingar eru um að fjárfestar hafi á undanförnum mánuðum í auknum mæli tekið fé út úr innlendum hlutabréfasjóðum. Mestu munar um innlausnir lífeyrissjóða, sem hafa aukið fjárfestingar erlendis sem og lánveitingar til sjóðsfélaga, og þá hafa margir einkafjárfestar leitað betri ávöxtunar í öðrum fjárfestingarkostum. Bein hlutafjáreign verðbréfa- og fjárfestingarsjóða í skráðum félögum hefur dregist saman um 36 milljarða á tæplega fjórum mánuðum. Samkvæmt gögnum sem Kauphöllin tók saman fyrir Fréttablaðið hefur hlutafjáreign verðbréfa- og fjárfestingarsjóða farið hlutfallslega lækkandi síðustu mánuði. Slíkir sjóðir áttu um 7,9 prósent af heildarmarkaðsvirði fyrirtækja í Kauphöllinni í september, samanlagt um 81,4 milljarða króna, borið saman við 9,8 prósent í lok maímánaðar. Til samanburðar var hlutfallið 10,9 prósent í lok síðasta árs og 12,0 prósent í lok árs 2015. Heildarmarkaðsvirði skráðra félaga hefur lækkað um 14,5 prósent frá því í lok maí og skýrir það að einhverju leyti minnkandi hlutafjáreign hlutabréfasjóða. Önnur skýring er tíu milljarða króna úttekt Frjálsa lífeyrissjóðsins úr sjóðum í rekstri eignastýringarfyrirtækisins Stefnis í júní. Þótt leiðrétt sé fyrir þessum tveimur breytum lækkaði hlutafjáreign sjóðanna engu að síður um tíu milljarða króna í sumar. Samkvæmt tölum frá Seðlabanka Íslands var innlausn hlutdeildarskírteina í hlutabréfasjóðum um 17,1 milljarði króna umfram sölu hlutdeildarskírteina á fyrstu sjö mánuðum ársins. Sé litið til sumarmánaðanna, maí, júní og júlí, nam upphæðin liðlega 12 milljörðum króna. Einn viðmælenda Fréttablaðsins á fjármálamarkaði segir eignir hlutabréfasjóða almennt hafa dregist saman undanfarið. Margir fjárfestar, þá ekki síst lífeyrissjóðir, hafi beint sjónum sínum í auknum mæli að fjárfestingum erlendis. Bæði hafi erlendar fjárfestingar aukist í kjölfar þess að stjórnvöld afléttu gjaldeyrishöftum í mars og eins eftir að gengi krónunnar tók að veikjast í júnímánuði eftir linnulausa styrkingu mánuðina á undan. „Lífeyrissjóðirnir hafa fyrst og fremst einbeitt sér að því að byggja upp eignir erlendis og lána til sjóðsfélaga sinna. Þar hefur verið mikill vöxtur,“ nefnir annar viðmælandi blaðsins. Kjartan Smári Höskuldsson, framkvæmdastjóri Íslandssjóða, bendir á að lífeyrissjóðir hafi á síðustu árum leyst til sín í meiri mæli en áður bréf sem þeir áttu í skulda- og hlutabréfasjóðum og ákveðið þess í stað að stýra þeim sjálfir. Það hafi verið þróunin undanfarið. Auk þess hafi lífeyrissjóðirnir haldið áfram að auka erlendar eignir sínar. „Þeir eru nettó seljendur á hlutabréfamarkaðinum á árinu og velja gjarnan fremur að selja eignir í sjóðum, sem bera kostnað, í stað þess að selja stöku bréfin sín.“ Til viðbótar hafi ekkert lát verið á lánum sjóðanna til sjóðsfélaga. Sjóðsstjóri sem Fréttablaðið ræddi við segir stemninguna á hlutabréfamarkaði dræmari en áður. Það hafi þau áhrif að almenningur sé ekki eins viljugur til þess að festa kaup á hlutabréfum og haldi fremur að sér höndum. Eins og kunnugt er hefur úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkað um 7,3 prósent það sem af er ári. Af þeim tólf innlendu hlutabréfasjóðum sem sýna ávöxtun á viðskiptavefnum Keldunni hefur aðeins einn sjóður, í stýringu Júpíters, sýnt jákvæða ávöxtun frá áramótum. Allir hinir hafa sýnt neikvæða ávöxtun, en lökust er hún hjá sjóðum í stýringu Landsbréfa. Kjartan Smári segir verðlagninguna á hlutabréfamarkaði almennt séð ekki vera úr hófi fram, sér í lagi í erlendum samanburði. Sú pólitíska óvissa sem nú sé uppi sé hins vegar ekki til þess fallin að hafa jákvæð áhrif á markaðinn. „Það er ekki ólíklegt að margir fjárfestar haldi að sér höndum og að það verði fremur rólegt yfir markaðinum fram yfir kosningar.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Viðskipti innlent Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Samstarf Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Samstarf Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk Sjá meira