Fjölmenn minningarstund á Trafalgar-torgi Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 23. mars 2017 22:36 Fjölmenni var við minningarstundina. Vísir/Getty
Þúsundir komu saman á Trafalgar-torgi í London í kvöld til þess að minnast fórnarlamba árásarinnar við breska þinghúsið í gær. Í fjarska mátti heyra nið lögregluþyrlna og gríðarleg öryggisgæsla var við torgið á meðan minningarathöfnin fór fram.Í frétt BBC segir að orðið samstaða hafi verið á allra vörum en fjórir létust, auk árásarmannsins, og um 40 slösuðust í árásinni. Kveikt var á kertum við National Gallery listasafnið og lögð á þrepin sem liggja að safninu. Fréttamaður BBC sem var á staðnum segir að allir þeir viðmælendur sem hún talaði við á torginu hafi verið sammála um að þeir ætli sér ekki að láta hryðjuverkamenn hafa truflandi áhrif á daglegt líf sitt. Árásin er rannsökuð sem hryðjuverk og þrátt fyrir að talið sé að árásarmaðurinn, Breti að nafni Khalid Masood, hafi verið einn af verki hafa hryðjuverkasamtökin ISIS lýst yfir ábyrgð vegna árásarinnar. Sadiq Khan, borgarstjóri London, tók til máls og sagði að Lundunarbúar myndu ekki láta hryðjuverk hræða sig. Haldin var einnar mínútu þögn á torginu til minningar um fórnarlömbin. Þeir sem dóu og særðust komu frá Bandaríkjunum, Bretlandi, Frakklandi, Grikklandi, Írlandi, Ítalíu, Kína, Póllandi, Rúmeníu, Spáni, Suður-Kóreu og Þýskalandi.Vísir/GettyVísir/GettyVísir/GettyVísir/GettyVísir/GettyVísir/GettyVísir/Getty
Mest lesið Of snemmt að kenna bikblæðingum um Innlent Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Innlent Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Festust á hvolfi í hálftíma Erlent Alvarlegt rútuslys í Öxnadal Innlent Þeir sem „brjóta alvarlega af sér“ verði sviptir dvalarleyfum Innlent Hlýtt í dag en vætusöm vika fram undan Veður Átök á lokametrunum: Saka ríkisstjórn um að „slátra“ samgönguáætlun Innlent Krefst landsvæðis og að Úkraína dragi NATO-umsóknina til baka Erlent Íþróttafélög hafa sum selt áfengi í leyfisleysi Innlent Fleiri fréttir Festust á hvolfi í hálftíma Krefst landsvæðis og að Úkraína dragi NATO-umsóknina til baka Vara við TikTok-æði eftir handtöku tveggja unglinga Samþykktu fimmtíu milljarða dala aðstoð til Úkraínu Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti Óeirðaástand í Buenos Aires vegna aðgerðarpakka Milei Lokuðu ferðamannastöðum og skólum vegna mikils hita Gamall handritsbútur reyndist úr guðspjalli um æsku Krists Aðeins fjórðungur Breta vill vera utan ESB Reyna að mynda bandalög fyrir skyndikosningar í Frakklandi Óvíst með afdrif vopnahléstillögunnar Frederiksen enn ekki með sjálfri sér eftir árásina Íhuga að virða tímamótadóm að vettugi Biden virðir sakadóminn yfir syni sínum Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Bananarisi ábyrgur fyrir morðum kólumbískrar dauðasveitar Umdeildur dómari vill trúræknari Bandaríki Varaforseti Malaví á meðal tíu látinna Hamas samþykkir vopnahléstillöguna Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir Skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Tólf ára drengir sekir um morð á nítján ára gömlum manni Öryggisráðið styður friðartillögu Biden Flugvél varaforseta Malaví týnd Biden ber ekki vitni í eigin sakamáli Ekkja leiðtoga ISIS leysir frá skjóðunni Lést af náttúrulegum orsökum Sjá meira