Samruni býr til risa á bætiefna- og hjúkrunarmarkaði Jóhann Óli Eiðsson skrifar 16. ágúst 2017 06:00 Bætiefni fyrir liði verða undanskilin í yfirtökunni. vísir/pjetur
Samkeppniseftirlitið heimilaði í gær yfirtöku Artasan ehf. á IceCare ehf. að vissum skilyrðum uppfylltum. Með samrunanum verður til eitt stærsta fyrirtæki landsins hvað varðar sölu á lyfjum, heilsuvörum, hjúkrunarvörum og lækningatækjum. Artasan annast innflutning, skráningu og markaðssetningu á samheitalyfjum, lausasölulyfjum og heilsuvörum. Vörur fyrirtækisins eru seldar til apóteka, sjúkrahúsa, hjúkrunarheimila, dagvöruverslana og bensínstöðva. IceCare hefur hingað til annast innflutning og heildsölu á vítamínum og öðrum heilsuvörum. Tilkynnt var um samrunann þann 23. mars síðastliðinn og hefur málið verið til meðferðar hjá eftirlitinu síðan þá. Í júní tilkynnti það samrunaaðilum að hugsanlega þyrfti að grípa til íhlutunar vegna samrunans þar sem sameinað fyrirtæki yrði of stórt á tilteknum mörkuðum. Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins kemur fram að sameinað fyrirtæki muni koma til með að verða stærsta fyrirtækið á vítamína- og bætiefnamarkaði hérlendis með ríflega fjórðungshlutdeild. Sömu sögu er að segja af markaði fyrir bætiefni fyrir meltingu og liði auk tannhreinsivara en þar yrði hlutdeildin um og yfir helmingur af markaðnum. Það var niðurstaða eftirlitsins að sameinað fyrirtæki Artasan og IceCare myndi ná markaðsráðandi stöðu hvað bætiefni fyrir liði varðar. Í því skyni að sporna við samþjöppun á markaði skuldbundu fyrirtækin sig til þess að undanskilja þann lið frá kaupunum. IceCare mun því þurfa að ráðstafa réttindum til sölu ákveðinna bætiefna til annars aðila en Artasan.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Setja stefnuna á seinni hluta árs Viðskipti innlent Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Samstarf Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Gjöfult samstarf Arion banka og íslenska karlalandsliðsins í yfir tuttugu ár Samstarf Fleiri fréttir Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Sjá meira