Bláa pillan Þorbjörn Þórðarson skrifar 16. maí 2017 07:00 Í kvikmyndinni Matrix sem var afar vinsæl um gjörvalla heimsbyggðina um síðustu aldamót finnur aðalsöguhetjan Neo á sér að það er eitthvað mikið að veröldinni sem hann lifir í. Hann á erfitt með að ákvarða það en einkennin eru mörg. Veruleikinn sem við stöndum frammi fyrir í íslensku heilbrigðiskerfi er svipaður. Okkur er talin trú um að stjórnvöld vilji standa vörð um hið ríkisrekna kerfi og það standi ekki til að byggja upp einkarekið kerfi á kostnað þess. Að ýja að öðru þykir dónaskapur. Samt eru margvísleg teikn á lofti um hið gagnstæða. Mörg einkenni sem benda til þess að veröldin sé önnur en sú sem okkur hefur verið talin trú um að sé sönn og áþreifanleg. Að mati Birgis Jakobssonar landlæknis er stefna stjórnvalda í heilbrigðismálum það óljós að hún býður upp á stefnuleysi í samningsgerð Sjúkratrygginga Íslands við einkaaðila í heilbrigðisþjónustu. Landlæknir fær ekki séð að hagsmunir sjúklinga séu hafðir að leiðarljósi í þessum samningum. „Við höfum komið okkur í þessa stöðu á mörgum árum vegna þess að við höfum svelt opinbera kerfið en á sama tíma hefur verið aukið í og gefið í í einkarekinni þjónustu,“ sagði Birgir í fréttum Stöðvar 2 á föstudag. Áhyggjur landlæknis eru réttmætar. Á sama tíma og skattfé er dælt í samninga Sjúkratrygginga Íslands við einkastofur sérfræðilækna, Klíníkina og önnur einkarekin heilbrigðisfyrirtæki sem vaxa án þarfagreiningar og skilgreindra markmiða við kaup á heilbrigðisþjónustu er opinbera kerfið svelt. Landspítalinn fær einn milljarð króna hér og annan þar og ráðherrar berja sér á brjóst vegna stóraukinna framlaga til heilbrigðismála. Þeir sem búa við sterka lausafjárstöðu geta stundað aðgerðatúrisma og leitað sér lækninga erlendis á kostnað skattgreiðenda á grundvelli svokallaðrar biðlistatilskipunar. Þetta eru nokkrar birtingarmyndir á kerfisbundnu niðurbroti ríkisrekna heilbrigðiskerfisins. Veruleikinn er annar en sá sem okkur er talin trú um. Þetta gerist á vakt hægristjórnar. Vandamál vinstriflokkanna er að þeir eru ekki trúverðugir varðhundar heilbrigðiskerfisins. Kerfið var holað að innan á þeirra vakt líka. Það er einn af samverkandi þáttum þess að sósíaldemókratar á Íslandi hafa tvístrast í margar einingar og geta ekki lotið stöðugri forystu. Þeir brenndu sitt eigið pólitíska vörumerki á báli niðurskurðar í velferðarkerfinu. Hinn dularfulli Morpheus býður Neo upp á tvo valkosti í Matrix. Neo getur tekið bláu pilluna og lifað áfram í draumheimi. Eða rauðu pilluna, vaknað til lífsins og fengið að heyra hráan sannleikann um veröldina sem hann lifir í. Við vitum að það er eitthvað mikið að heilbrigðiskerfinu. Við getum tekið bláu pilluna frá ríkisstjórninni, kyngt henni og haldið áfram í draumheimi eins og ekkert hafi í skorist. Þá er hægt að halda áfram að einkavæða kerfið eitt skref í einu. Eða við getum tekið rauðu pilluna, yfirgefið draumheiminn, spyrnt við fótum og neitað að lifa í lygi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Þorbjörn Þórðarson Mest lesið Loftslagsverkfallið krefst aðgerða strax! Tinna Hallgrímsdóttir Skoðun Hagræðing á kostnað fjölbreytni og gæðamenntunar Ida Marguerite Semey Skoðun Látum draumana rætast, á kostnað hverra? Takmarkanir menntastefnu Reykjavíkurborgar Ingólfur Dan Þórisson,Margrét Dan Þórisdóttir,Ana Victoria Cate,Helga Dögg Yngvadóttir Skoðun Ófullnægjandi vinnubrögð ófaglærðra „iðnaðarmanna“: Áhrif á húskaupendur Kristinn R Guðlaugsson Skoðun Ein saga af sextíu þúsund Halldór Ísak Ólafsson Skoðun Ekki sprengja börn! Ellen Calmon Skoðun Þúsundir kusu Sönnu Anna Bentína Hermansen Einarsdóttir,Ármann Hákon Gunnarsson,Baldvin Björgvinsson,Brynja Guðnadóttir,Haraldur Ingi Haraldsson,Jón Hallur Haraldsson,Kolbrún Erna Pétursdóttir,Ólafur H. Ólafsson,Rakel Hildardóttir,Sigrún Jónsdóttir Skoðun Sumt er bara ekki hægt að rökræða Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun Bankar gegn þjóð Bjarni Jónsson Skoðun Er veganismi á undanhaldi? Aldís Amah Hamilton,Kristín Helga Sigurðardóttir,Adelina Antal,Hanna Halldórsdóttir,Sigrún Elfa Kristinsdóttir,Lowana Veal Skoðun
Látum draumana rætast, á kostnað hverra? Takmarkanir menntastefnu Reykjavíkurborgar Ingólfur Dan Þórisson,Margrét Dan Þórisdóttir,Ana Victoria Cate,Helga Dögg Yngvadóttir Skoðun
Ófullnægjandi vinnubrögð ófaglærðra „iðnaðarmanna“: Áhrif á húskaupendur Kristinn R Guðlaugsson Skoðun
Þúsundir kusu Sönnu Anna Bentína Hermansen Einarsdóttir,Ármann Hákon Gunnarsson,Baldvin Björgvinsson,Brynja Guðnadóttir,Haraldur Ingi Haraldsson,Jón Hallur Haraldsson,Kolbrún Erna Pétursdóttir,Ólafur H. Ólafsson,Rakel Hildardóttir,Sigrún Jónsdóttir Skoðun
Er veganismi á undanhaldi? Aldís Amah Hamilton,Kristín Helga Sigurðardóttir,Adelina Antal,Hanna Halldórsdóttir,Sigrún Elfa Kristinsdóttir,Lowana Veal Skoðun
Látum draumana rætast, á kostnað hverra? Takmarkanir menntastefnu Reykjavíkurborgar Ingólfur Dan Þórisson,Margrét Dan Þórisdóttir,Ana Victoria Cate,Helga Dögg Yngvadóttir Skoðun
Ófullnægjandi vinnubrögð ófaglærðra „iðnaðarmanna“: Áhrif á húskaupendur Kristinn R Guðlaugsson Skoðun
Þúsundir kusu Sönnu Anna Bentína Hermansen Einarsdóttir,Ármann Hákon Gunnarsson,Baldvin Björgvinsson,Brynja Guðnadóttir,Haraldur Ingi Haraldsson,Jón Hallur Haraldsson,Kolbrún Erna Pétursdóttir,Ólafur H. Ólafsson,Rakel Hildardóttir,Sigrún Jónsdóttir Skoðun
Er veganismi á undanhaldi? Aldís Amah Hamilton,Kristín Helga Sigurðardóttir,Adelina Antal,Hanna Halldórsdóttir,Sigrún Elfa Kristinsdóttir,Lowana Veal Skoðun