Rekstrarhagnaður Advania var einn milljarður og jókst um 60 prósent Hörður Ægisson skrifar 22. mars 2017 10:46 Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania á Íslandi, segir mun hærra hlutfall af tekjum félagsins komi nú af þjónustu fremur en vörusölu.
Upplýsingatæknifyrirtækið Advania á Íslandi skilaði í fyrra sinni bestu rekstrarafkomu frá upphafi en EBITDA-hagnaður félagsins - afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta - nam þá rúmlega einum milljarði króna og jókst um 63 prósent frá fyrra ári. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að heildartekjur Advania hafi aukist um 7 prósent á milli ára og voru samtals 11.455 milljónir króna í fyrra. Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania á Íslandi, segir að árangurinn sem náðst hafi megi rekja til nokkurra þátta. „Í fyrsta lagi hefur eftirspurn eftir vörum og þjónustu fyrirtækisins aukist mikið. Það er eiginlega sama hvert er litið, til hýsingar, rekstrar, uppfærslu fjárhags- og mannauðskerfa eða hugbúnaðarþróunar, alls staðar er aukin eftirspurn. Í öðru lagi höfum við einfaldað vöruframboð okkar þannig að mun hærra hlutfall af tekjum okkar kemur nú af þjónustu fremur en vörusölu. Í þriðja lagi þá höfum við á að skipa ótrúlega flottum hópi starfsmanna sem hefur lagt mikið á sig við að auka skilvirkni og bæta þjónustu við viðskiptavini,“ segir Ægir. Árið 2016 bvar fyrsta heila árið sem Advania á Íslandi var rekið sem sjálfstætt dótturfélag Advania Norden en það er einnig með starfsemi í Noregi og Svíþjóð. „Með því að reka Advania á Íslandi sem sjálfstætt dótturfélag skerptum við á áherslum fyrir íslenskan markað til að tryggja viðskiptavinum okkar hér þjónustu sem væri sérsniðin að þeirra þörfum,“ segir Ægir Már. „Við höfum gengið í gegnum miklar breytingar á undanförnum árum sem starfsfólk okkar hefur tekist á við með afbragðsgóðum árangri,“ segir Ægir Már.
Mest lesið Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira