Tveir bandarískir fjárfestingasjóðir komnir með 3,5 prósent í VÍS Hörður Ægisson skrifar 22. mars 2017 09:30 Hlutur sjóðanna í VÍS er metinn á um 875 milljónir. VÍSIR/Anton
Tveir bandarískir fjárfestingarsjóðir á vegum eignastýringarfyrirtækisins Eaton Vance Management komust í síðustu viku í fyrsta sinn á lista yfir tuttugu stærstu hluthafa tryggingafélagsins VÍS. Sjóðirnir Global Macro Portfolio og Global Macro Absolute Return Advantage eiga þannig í dag samanlagt 3,44 prósenta hlut í VÍS sem þýðir að þeir eru saman tíundu stærstu hluthafar félagsins. Hlutur sjóðanna er metinn á um 875 milljónir króna miðað við núverandi gengi bréfa VÍS. Kaup sjóðanna á bréfum í VÍS komu í kjölfar þess að stjórnvöld tilkynntu um afnám fjármagnshafta sunnudaginn 12. mars síðastliðinn. Þá stóðu sjóðirnir einnig á sama tíma fyrir kaupum á enn stærri hlut í Eimskipum, en þeir eiga núna samanlagt rúmlega 3,6 prósenta hlut í félaginu, auk þess að fjárfesta í öllum þremur fasteignafélögunum – Reitum, Regin og Eik – sem eru skráð á markað. Sjóðirnir eru í dag á lista yfir stærstu hluthafa í öllum fasteignafélögunum og markaðsvirði þess hlutar nemur samtals um 4 milljörðum.Fjárfestingarsjóðirnir hafa frá 2015 verið langsamlega umsvifamestir erlendra aðila á íslenskum hlutabréfamarkaði. Sjóðirnir eru á meðal tuttugu stærstu hluthafa í tíu félögum í Kauphöllinni og nemur samanlagt markaðsvirði þess eignarhlutar yfir tíu milljörðum. Þá hafa sjóðirnir jafnframt staðið að kaupum í öðrum skráðum fyrirtækjum og þegar tekið er tillit til alls þessa má varlega áætla að sjóðir Eaton Vance eigi um tvö prósent af heildarhlutafé á hlutabréfamarkaði. Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál.
Mest lesið Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira