Leiðtogi Evruhópsins gagnrýndur fyrir ummæli um áfengi og konur Atli Ísleifsson skrifar 22. mars 2017 16:33 Jeroen Dijsselbloem tók við sem leiðtogi Evruhópsins frá árinu 2013. Vísir/AFP
Það er ekki hægt að eyða peningum í áfengi og konur og svo reikna með að fá aðstoð, sagði Jeroen Dijsselbloem, fjármálaráðherra Hollands og leiðtogi Evruhópsins í viðtali við þýskt dagblað. Dijsselbloem hefur nú verið harðlega gagnrýndur fyrir ummælin og hafa samflokksmenn hans í hollenska Verkamannaflokknum (PVDA) krafist afsagnar hans. Dijsselbloem mun brátt láta af embætti fjármálaráðherra Hollands þar sem flokkur hans, DVDA, beið afhroð í hollensku þingkosningunum fyrir viku. Ráðherrann getur þó setið áfram sem leiðtogi Evruhópsins fram á næsta ár, en þar er einnig sótt að honum. „Því fyrr sem hann fer, því betra. Hann hefur misst af kjörnu tækitæki til að halda sér saman,“ segir Matteo Renzi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu. „ESB verður ekki trúverðugt sem sameiginlegt verkefni fyrr en þann dag sem herra Dijsselbloem hættir sem leiðtogi Evruhópsins og biður þau lönd og þær þjóðir afsökunar sem hann hefur sært með ummælum sínum,“ segir portúgalski forsætisráðherrann Antonio Costa.Skotið á ríki sunnarlega í álfunni Með orðum sínum eru Renzi og Costa að gagnrýna orð Dijsselbloem sem á að hafa sagt í samtali við þýska blaðið FAZ að sem jafnaðarmaður leggi hann mikla áherslu á samstöðu. „Menn geta ekki eytt öllum peningum sínum í áfengi og konur og beðið svo um hjálp,“ sagði Dijsselbloem, en orðin hafa verið túlkuð sem gagnrýni á evrulönd sunnarlega í álfunni. Talsmaður Dijsselbloem hefur reynt að skýra hvað hann átti við og segir að gagnrýnin hafi alls ekki beinst að einhverju ákveðnu ríki, heldur snerist frekar að því að benda á að samstaða sé nátengd ábyrgð. Talið er að framtíð Dijsselbloem sem leiðtogi Evruhópsins muni ráðast á næstu dögum, en Peter Kazimir, fjármálaráðherra Slóvakíu hefur verið nefndur sem líklegur arftaki hans. Dijsselbloem tók við sem leiðtogi Evruhópsins frá árinu 2013.
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Innlent Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Eldur logar í þaki Kringlunnar Innlent Fleiri fréttir Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Festust á hvolfi í hálftíma Krefst landsvæðis og að Úkraína dragi NATO-umsóknina til baka Vara við TikTok-æði eftir handtöku tveggja unglinga Samþykktu fimmtíu milljarða dala aðstoð til Úkraínu Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti Óeirðaástand í Buenos Aires vegna aðgerðarpakka Milei Lokuðu ferðamannastöðum og skólum vegna mikils hita Gamall handritsbútur reyndist úr guðspjalli um æsku Krists Aðeins fjórðungur Breta vill vera utan ESB Reyna að mynda bandalög fyrir skyndikosningar í Frakklandi Óvíst með afdrif vopnahléstillögunnar Frederiksen enn ekki með sjálfri sér eftir árásina Íhuga að virða tímamótadóm að vettugi Biden virðir sakadóminn yfir syni sínum Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Bananarisi ábyrgur fyrir morðum kólumbískrar dauðasveitar Umdeildur dómari vill trúræknari Bandaríki Varaforseti Malaví á meðal tíu látinna Hamas samþykkir vopnahléstillöguna Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir Skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Tólf ára drengir sekir um morð á nítján ára gömlum manni Öryggisráðið styður friðartillögu Biden Flugvél varaforseta Malaví týnd Biden ber ekki vitni í eigin sakamáli Ekkja leiðtoga ISIS leysir frá skjóðunni Sjá meira