Ríkið fær 12 milljarða í sérstakri arðgreiðslu frá Landsbankanum Hörður Ægisson skrifar 22. mars 2017 09:00 Íslenska ríkið á 98,2 prósent í Landsbankanum. VÍSIR/GVA
Bankaráð Landsbankans leggur til sérstaka arðgreiðslu til hluthafa, en íslenska ríkið fer með rúmlega 98 prósenta hlut í bankanum, að fjárhæð 11,82 milljarðar króna. Þetta kemur fram í tillögum fyrir aðalfund Landsbankans sem fer fram síðar í dag, miðvikudag, en gjalddagi sérstöku arðgreiðslunnar verður 20. september á þessu ári. Sú greiðsla kemur til viðbótar arðgreiðslu upp á 13 milljarða króna, sem áður hafði verið greint frá, vegna afkomu síðasta árs en bankinn hagnaðist um 16,6 milljarða króna eftir skatt á árinu 2016. Samtals fær ríkissjóður því um 24,4 milljarða króna í arðgreiðslur frá Landsbankanum á þessu ári. Það er lítillega lægri upphæð en Landsbankinn greiddi í arð til ríkisins í fyrra en þá nam arðgreiðsla bankans, vegna afkomu af rekstri á árinu 2015, samtals 28,5 milljörðum króna. Hagnaður bankans á árinu 2015 nam 36,5 milljörðum króna eftir skatta. Íslandsbanki, sem er jafnframt í eigu ríkisins, hefur áður tilkynnt að stjórn bankans muni leggja til arðgreiðslu á þessu ári að fjárhæð 10 milljarðar sem er um 50 prósent af hagnaði bankans í fyrra. Í desember 2016 tilkynnti bankinn um sérstaka arðgreiðslu að upphæð 27 milljarðar og námu heildararðgreiðslur bankans til íslenska ríkisins 37 milljörðum á árinu 2016.Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál.
Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira