Glitur fær vottun frá Mercedes-Benz Finnur Thorlacius skrifar 26. september 2017 12:30 Dirk Zentgraf, Guðjón Ágúst Sigurðsson, Albert Kristjánsson og Óskar Páll Þorgilsson fögnuðu því að Glitur sé komið vottun sem viðurkennt málningar- og réttingarverkstæði fyrir Mercedes-Benz bíla.
Bílaumboðið Askja hefur gert samning við Glitur bílamálun og réttingar á Suðurlandsbraut. Glitur hefur nú fengið vottun sem viðurkennt málningar- og réttingarverkstæði fyrir Mercedes-Benz bíla. ,,Glitur hefur starfað náið með Öskju allt frá árinu 2005 og hefur sinnt viðgerðum á Mercedes-Benz bifreiðum. Samhliða góðu gengi í sölu og miklum tækninýjungum hefur eftirspurnin eftir viðurkenndu verkstæði aukist. Glitur hefur lengi sóst eftir því að verða fyrsta viðurkennda málningar- og réttingaverkstæði fyrir Mercedes-Benz á Íslandi, og hefur undanfarin ár fjárfest í tæknibúnaði, sérverkfærum og þjálfun samkvæmt kröfum framleiðandans. Sem hluti af þessu ferli þurftu starfsmenn Gliturs að sækja fjölda námskeiða í Þýskalandi og standast úttektir á vinnubrögðum, tækjabúnaði og framkvæmd viðgerða. Í lokaúttektinni sem fór fram í september kom í ljós að vinna undanfarinna ára hafði skilað sér í framúrskarandi gæðum," segir Óskar Páll Þorgilsson, forstöðumaður þjónustusviðs Öskju. Dirk Zentgraf, sérfræðingur Mercedes-Benz, sem framkvæmdi lokaúttektina hafði á orði að verkstæði Gliturs stæðist fyllilega kröfur sem framleiðandi gerir varðandi tjónaviðgerðir og væri sambærilegt að gæðum við það sem best gerist í Þýskalandi. Óskar Páll segir að í dag sé Glitur eina verkstæði landsins sem er tæknilega fært um að sinna tjónaviðgerðum á Mercedes-Benz bifreiðum á fullnægjandi hátt til að viðhalda fullum gæðum og öryggi farþega. Sem hluti af heimsókn Zentgraf hélt Askja kynningarfund fyrir íslensku tryggingafélögin, þar sem ræddar voru viðgerðaraðferðir og mikilvægi þess að fylgja ráðleggingum framleiðanda, bæði til að tryggja endingu viðgerðarinnar en ekki síst til að tryggja að öryggi farþega sé ekki ábótavant og að öryggisbúnaður bifreiðarinnar bregðist rétt við þegar þörf er á. ,,Mikil þörf er á því að auka tæknilega þekkingu þeirra sem koma að tjónaviðgerðum þar sem kunnáttuleysi hefur orðið til þess að skemmdir hafa verið unnar á öryggisbúnaði með röngum viðgerðaraðferðum. Það sýnir mikilvægi þess að bifreiðar fari á viðurkennd verkstæði til að tryggja að slíkt eigi sér ekki stað," segir Óskar Páll ennfremur.
Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent