Austurberg kaupir Íspan Atli Ísleifsson skrifar 1. september 2017 13:06 Í tilkynningunni kemur ekkert fram um kaupverð. Íspan
Samkomulag hefur náðst milli hluthafa Íspan ehf. og Austurbergs ehf. um kaup þess síðarnefnda á félaginu. Í tilkynningu frá Deloitte, sem hélt utan um söluna, segir að söluferlið hafi hafist í maí síðastliðnum og hafi fjölmargir aðilar sýnt áhuga á kaupum á félaginu. „Niðurstaða fyrrgreinds ferlis var að ganga til samninga við Austurberg ehf. Umsjón söluferlisins var í höndum Deloitte sem jafnframt var ráðgjafi seljenda en Ernst & Young og Local lögmenn voru ráðgjafar kaupanda. Afhending félagsins hefur farið fram.“ Í tilkynningunni kemur ekkert fram um kaupverð. Haft er eftir Guðmundi Grímssyni, yfir hönd seljenda Íspan, að mikil ánægja sé með niðurstöðuna. „Við hlökkum til að vinna með nýjum eigendum að rekstri félagsins á næstu misserum. Við vorum farin að huga að kynslóðaskipum og teljum að niðustaða söluferlisins sé jákvæð fyrir félagið, starfsfólk þess og viðskiptavini.“ Einar Þór Harðarson hjá Austurbergi segir Íspan vera rótgróið framleiðslufyrirtæki með gott orðspor og sé þekkt fyrir hátt þjónustustig og gæðaframleiðslu. „Markmið okkar með kaupunum er að halda áfram því góða starfi og þróa félagið til framtíðar. Að baki Austurbergs er fjölskylda, þannig að Íspan verður áfram fjölskyldufyrirtæki. Íspan byggir á gömlum og góðum grunni, framleiðir gæða vörur á Íslandi, fyrir íslenskar aðstæður og getur afhent framleiðslu sína hratt til viðskiptavina um land allt. Mikil þekking og fagmennska er til staðar hjá Íspan þar sem flestir starfsmenn hafa unnið lengi hjá félaginu.“ Íspan var stofnað árið 1969 og sérhæfir sig í framleiðslu og sölu á gleri og speglum. Hjá félaginu starfa, að jafnaði, um það bil þrjátíu manns í framleiðslu- og söludeild. Seljendur munu starfa með nýjum eiganda fram á næsta ár.
Mest lesið „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Viðskipti innlent Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Viðskipti innlent Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Viðskipti erlent Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Sjá meira