Stjórnarformaður Arion banka hættir og Guðrún Johnsen tekur við Hörður Ægisson skrifar 10. maí 2017 18:47 Monica Caneman, sem er frá Svíþjóð, hefur verið stjórnarformaður Arion banka frá árinu 2010.
Monica Caneman hefur ákveðið að láta af stjórnarsetu í Arion banka en hún hefur gegnt stjórnarformennsku í bankanum frá árinu 2010. Guðrún Johnsen, sem hefur verið varaformaður á tímabilinu, tekur við sem stjórnarformaður bankans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka en þar er haft eftir Monicu að nýlegar breytingar á eignarhaldi bankans marki ákveðin þáttaskil. „Frekari breytingar á eignarhaldi munu eiga sér stað á næstunni og nýr kafli er því að hefjast. Ég tel rétt á þessum tímapunkti að láta öðrum eftir stjórnarformennsku.“ Tilkynnt var um kaup bandarískra vogunarsjóða og Goldman Sachs á samanlagt tæplega 30 prósenta hlut í bankanum í mars síðastliðnum. Þá hefur fjárfestahópurinn jafnframt kauprétt á liðlega 22 prósenta hlut í viðbót síðar á árinu samhliða því að stefnt er að skráningu bankans á markað. Monica segir að það hafi verið ánægjulegt að taka þátt í uppbyggingu bankans á undanförnum sjö árum og upplifa þær jákvæðu breytingar sem hafa átt sér stað á þeim tíma. „Þetta hefur verið viðburðaríkur tími þar sem bankinn, rétt eins og íslenskt efnahagslíf, hefur styrkst á öllum sviðum. Arion banki nýtur nú góðrar stöðu á þeim mörkuðum sem hann starfar og er fjárhagslega sterkur. Mikilvægasti drifkraftur bankans er frábært starfsfólk sem hefur staðið sig virkilega vel á undanförnum árum við að byggja upp góðan banka.“
Mest lesið Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Viðskipti innlent Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Viðskipti innlent Sögulegur hagnaður á samrunatímum Viðskipti innlent Slugsagjöldin „neyðarúrræði“ og „ekki til að græða“ Neytendur Óskar eftir starfslokum Viðskipti innlent Stækka hótelveldið á Suðurlandi Viðskipti innlent Grunur um listeríu í vinsælum ostum Neytendur Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Viðskipti innlent Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Viðskipti erlent Almannatenglar stofna fjölmiðil Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sögulegur hagnaður á samrunatímum Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Almannatenglar stofna fjölmiðil Lánshæfið hækkar úr stöðugu í jákvætt Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Stækka hótelveldið á Suðurlandi Óskar eftir starfslokum „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Sjá meira