Tveir bandarískir sjóðir komnir með 2,8 prósenta hlut í TM Kristinn Ingi Jónsson skrifar 4. október 2017 09:30 Hlutabréf TM hafa hækkað um 16 prósent í verði í ár. vísir/anton brink
Tveir bandarískir fjárfestingarsjóðir á vegum eignastýringarfyrirtækisins Eaton Vance Management komust nýverið í fyrsta sinn á lista yfir tuttugu stærstu hluthafa tryggingafélagsins TM. Sjóðirnir Global Macro Portfolio og Global Macro Absolute Return Advantage eiga þannig í dag samanlagt 2,84 prósenta hlut í TM sem þýðir að þeir eru saman elleftu stærstu hluthafar félagsins. Hlutur sjóðanna er metinn á tæpar 590 milljónir króna miðað við gengi bréfa TM eftir lokun markaða í gær. Sjóðirnir eru einu erlendu aðilarnir sem komast á lista yfir stærstu hluthafa í TM. Þeir eru jafnframt á lista yfir stærstu hluthafa í öllum þremur tryggingafélögunum – Sjóvá, TM og VÍS – sem eru skráð á hlutabréfamarkað. Sjóðirnir umræddu voru ekki á hluthafalista TM í lok síðasta árs, samkvæmt upplýsingum Markaðarins. Fjárfestingarsjóðir á vegum Eaton Vance hafa frá árinu 2015 verið langsamlega umsvifamestir erlendra aðila á íslenskum hlutabréfamarkaði. Sjóðirnir eru á meðal tuttugu stærstu hluthafa í tíu félögum í Kauphöllinni og má ætla að samanlagt markaðsvirði þess eignarhlutar nemi vel yfir tíu milljörðum króna.Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál.
Mest lesið Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira