Svona lítur óléttubumba út eftir barnsburð Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 16. nóvember 2017 21:30
Instagram-stjarnan Courtney Baird hefur vakið mikla athygli fyrir að birta mynd af sér rétt fyrir og rétt eftir barnsburð. Þegar myndirnar tvær eru settar saman sést það svart á hvítu að óléttukúlan hverfur ekki eins og dögg fyrir sólu eftir að barnið kemur í heiminn, eins og Courtney hélt. „Ég hugsaði: Bless bumba! Ég sé fæturnar mínar aftur og loksins hættir fólk að spyrja mig hvenær ég sé sett,“ segir Courtney í viðtali við Us Weekly. En þegar Courtney leit í spegil eftir fæðingu sá hún konu sem leit út eins og hún væri komin sex mánuði á leið, eins og eðlilegt er. „Ég held að oft séu bara sýndar myndir af konum á samfélagsmiðlum sem hafa jafnað sig strax eftir fæðingu og vippa sér samstundis í þröngar gallabuxur, án þess að það sjáist að þær hafa gengið með barn,“ bætir Courtney við. Þess vegna ákvað þessi Instagram-mamma að birta myndina af sér, aðeins einni viku eftir að hún eignaðist soninn Forden. Courtney hefur nú þegar fengið hundruði skilaboð frá mæðrum sem tengja við myndina og hefur verið líkað við hana rúmlega fimmtán þúsund sinnum. „Maður á að einbeita sér hundrað prósent að því að hvíla sig eftir fæðingu, sem og að jafna sig og njóta tímans með barninu,“ segir Courtney og bætir við:„Það er mikilvægt að vera góður við sig sjálfan og minna sig á að maður stóð sig vel.“
Mest lesið Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Funheit í fimm ára afmæli Lífið Hvað veistu um... íslenska hönnun? Lífið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Elegant herrar selja perlu í 101 Lífið Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Lífið samstarf Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Lífið Hrútar orðnir að kóreskum kálfum Bíó og sjónvarp Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Lífið Fleiri fréttir Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Sjá meira