VÍS bætir upplýsingagjöf til markaðarins Kristinn Ingi Jónsson skrifar 30. ágúst 2017 09:00 Helgi Bjarnason er forstjóri VÍS en félagið er tryggingafyrirtækið til að birta reglulegar upplýsingar um samsetta hlutfallið.
Við viljum efla alla okkar upplýsingagjöf til markaðarins og þetta er eitt skref í því,“ segir Helgi Bjarnason, forstjóri tryggingafélagsins VÍS, í tilefni þess að félagið hefur ákveðið að birta reglulega upplýsingar um samsett hlutfall og greiddar tjónabætur. Upplýsingarnar verða birtar mánaðarlega. Um miðjan næsta september verða til dæmis birtar upplýsingar um samsett hlutfall og greiddar tjónabætur hjá félaginu í ágústmánuði. „Við teljum einfaldlega að það sé til bóta að markaðurinn sé betur upplýstur um gang mála og sjáum ekki af hverju við ættum að halda þessum upplýsingum leyndum,“ útskýrir Helgi. Hann bætir við að þetta geri stjórnendum kleift að byrja fyrr að vinna með þessar upplýsingar ásamt starfsfólki, því hingað til hafa þær verið skilgreindar sem innherjaupplýsingar. VÍS er fyrsta tryggingafélagið hér á landi sem hefur tekið ákvörðun um að birta slíkar upplýsingar. Til samanburðar má nefnda að Icelandair Group birtir mánaðarlega flutningstölur félagsins. Ætla má að upplýsingagjöf af þessu tagi geri vangaveltur um afkomuviðvaranir, eins og VÍS tilkynnti um í júli síðastliðnum, óþarfar en sú viðvörun var gefin út eftir nokkra óvenju tjónalétta mánuði í röð hjá félaginu. „Já, það er einn þáttur í þessari ákvörðun hjá okkur. Við viljum bara að markaðurinn hafi þessar upplýsingar og geti fylgst sjálfur með þróuninni. En um leið verðum við að treyst því að markaðurinn skilji að rekstur tryggingafélaga er í eðli sínu alltaf sveiflukenndur á milli mánaða,“ segir Helgi.Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira