AGS segir að efling fjármálaeftirlits eigi að vera í forgangi Þorbjörn Þórðarson skrifar 24. júní 2017 19:03
Framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins telur að það eigi að vera í algjörum forgangi hjá íslenskum stjórnvöldum að styrkja eftirlit með fjármálamarkaðnum. Þá sé æskilegt að endurskoða lög um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Í nýrri úttekt Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er lagt mat á stöðu og horfur í efnahagsmálum hér á landi. Í tilkynningu frá sjóðnum er farið jákvæðum orðum um stöðuna og þar er nefnt til sögunnar mikill hagvöxtur, lítil verðbólga, uppbygging gjaldeyrisforða, afgangur á viðskiptajöfnuðu og lækkun á skuldum ríkis og sveitarfélaga. Hins vegar gerir sjóðurinn athugasemdir við að ekki sé nægilega mikill afgangur á fjárlögum í ljósi þenslunnar í hagkerfinu og þá leggur sjóðurinn til ýmsar breytingar, eins og eflingu opinbers fjármálaeftirlits. Í yfirýsingu framkvæmdastjórnar sjóðsins segir: Framkvæmdastjórnin áréttaði að styrking á eftirliti með fjármálageiranum ætti að vera forgangsverkefni. Framkvæmdastjórnin hvatti til endurskoðunar á lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi til að styrkja eftirlitið og loka eyðum í eftirliti fjármálageirans. „Ég er sammála því að fjármálaeftirlit eigi að vera mjög sterkt á Íslandi. Ég tel raunar að það sé það enda hefur það verið styrkt mjög mikið eftir hrun. Það er búið að breyta fjöldanum öllum af lögum. Það getur hins vegar vel verið að það sé komið tilefni til að skoða lög sérstaklega um eftirlit með fjármálastofnunum í tilefni af þessu,“ segir Benedikt Jóhannesson fjármála- og efnahagsráðherra.
Mest lesið Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira