Launamunur kynjanna um sextán prósent á síðasta ári Atli Ísleifsson skrifar 24. október 2017 09:52 Árið 2016 var fimmta hver kona með heildarlaun undir 400 þúsund krónum á mánuði fyrir fullt starf en fjórtándi hver karl. Vísir/Getty
Óleiðréttur launamunur kynjanna var 16,1 prósent á síðasta ári samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Munurinn hafði verið 17 prósent árið 2015. Í frétt Hagstofunnar segir að launamunurinn hafi verið rúmlega 16 prósent bæði á almennum vinnumarkaði og hjá ríkisstarfsmönnum en rúm átta prósent hjá starfsmönnum sveitarfélaga þar sem launadreifing er almennt minni. „Árið 2016 var fimmta hver kona með heildarlaun undir 400 þúsund krónum á mánuði fyrir fullt starf en fjórtándi hver karl. Þá voru tæplega 15% karla með heildarlaun yfir milljón á mánuði en tæplega 6% kvenna. Helmingur kvenna var með laun undir 525 þúsund krónum en miðgildi heildarlauna karla var 643 þúsund krónur á mánuði. Heildarlaun kvenna voru að meðaltali 22% lægri en heildarlaun karla árið 2016. Heildarlaun karla voru að meðaltali 742 þúsund krónur og heildarlaun kvenna 582 þúsund krónur. Vinnutími skýrir að hluta til hærri heildarlaun karla en kvenna fyrir fullt starf. Karlar í fullu starfi unnu að jafnaði meira en konur í fullu starfi og voru greiddar stundir karla að meðaltali 189,1 á mánuði árið 2016 en 179,7 hjá konum. Þannig var minni munur á grunnlaunum fullvinnandi launamanna eftir kyni eða um 12% enda yfirvinna ekki hluti grunnlauna. Munurinn á reglulegum launum karla og kvenna, það er grunnlaun auk fastra bónus- og álagsgreiðslna, var rúm 15%,“ segir í frétt Hagstofunnar.Nánar má lesa um málið á vef Hagstofunnar.
Mest lesið Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Viðskipti innlent Ragnar Jónasson til liðs við Logos Viðskipti innlent Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Atvinnulíf Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Sjá meira